Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skipað Sigrúnu Ágústsdóttur í embætti forstjóra Umhverfisstofnuanr frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar.
Sigrún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur starfað að umhverfismálum í um 20 ár, þar af sem sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun frá árinu 2008 og var auk þess staðgengill forstjóra áður en hún var settur forstjóri í október síðastliðnum.
Þá starfaði hún sem lögfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu frá 2000-2008. Fyrir þann tíma starfaði hún sem lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins.
Sigrún hefur sinnt prófdómarastörfum og stundakennslu við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík meðfram starfi sínu, m.a. í umhverfisrétti og stjórnsýslu umhverfismála. Þá hefur hún verið samræmingaraðili Umhverfisstofnunar og gagnvart IMPEL, samtökum umhverfisstofnana í Evrópu.
Eiginmaður Sigrúnar er Davíð Pálsson tæknimaður og eiga þau tvö börn.