Landsvirkjun á nú í samtali við Rio Tinto, eiganda álversins í Straumsvík, en fyrirtækið tilkynnti í morgun að það ætlaði að hefja „sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins í Straumsvík til að meta rekstrarhæfni þess til framtíðar.“
Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að aðstæður á álmörkuðum séu mjög krefjandi um þessar mundir, meðal annars út af lágu álverði, minni eftirspurn og mikilli framleiðsluaukningu í Kína undanfarin ár. „Einnig hefur álverið í Straumsvík lent í rekstrarerfiðleikum sem hefur meðal annars haft áhrif á afkomu þess.“
Þá segir að Landsvirkjun og álverið í Straumsvík hafi átt í farsælu og löngu viðskiptasambandi frá stofnun. Núgildandi raforkusamningur milli Landsvirkjunar og Rio Tinto hafi verið í gildi síðan 2010.
Sýna því skilning að aðstæður séu krefjandi
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að þau hjá Landsvirkjun sýni því skilning að aðstæður fyrirtækisins séu krefjandi og eigi þau í samtali við Rio Tinto til þess að fá sameiginlega sýn á stöðu mála. „Við höfum sagt og teljum áfram að raforkusamningurinn sé sanngjarn fyrir báða aðila og að það séu fleiri þættir en raforkuverðið sem hafa áhrif á þeirra stöðu en þetta erum við að greina nánar í sameiningu,“ segir hann.