Í ljósi þess að fyrsti einstaklingurinn hefur greinst með kórónaveiruna Covid-19 hér á landi hefur ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni fært stig almannavarna af óvissustigi á hættustig.
Samkvæmt tilkynningu Reykjavíkurborgar kom neyðarstjórn borgarinnar saman klukkan 16:00 í gær þar sem viðbragðsáætlun borgarinnar fyrir hættustig var virkjuð. Í framhaldi voru stjórnendur borgarinnar upplýstir um það og lagt fyrir að þeir upplýsi starfsfólk sitt.
Neyðarstjórn borgarinnar kom aftur saman í dag klukkan 14:00 og vinnur í nánu samstarfi við almannavarnir, segir í tilkynningunni.Hún mun funda aftur á morgun þar sem farið verður yfir næstu skref.
Öll 24 sýnin neikvæð
Fram kemur í frétt RÚV í dag að öll sýni, alls 24, sem tekin voru í gær eftir að í ljós kom að maður á fimmtugsaldri væri með COVID-19 kórónaveiruna, hafi reynst neikvæð. Alls sé 81 Íslendingur í heimasóttkví hér á landi.
Alls hafi 85 sýni verið tekin að undanförnu en aðeins einn, karlmaður á fimmtugsaldri, hefur greinst með COVID-19 veiruna. Hann er nú í einangrun á smitsjúkdómadeild Landspítalans.