Dagur segist standa við Kastljósstilboðið og býður Sólveigu Önnu til fundar

Borgarstjóri hefur sent Eflingu viðbrögð við tilboði um að fresta verkfalli í tvo sólarhringa.

Hjálmar, Dagur og Skúli. Nýr meirihluti í borginni 2018.
Auglýsing

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur, segir að hann standi „að sjálf­sögðu við allt sem ég sagði í Kast­ljósi á sínum tíma en það er ekki gagn­legt þegar reynt er að að snúa út úr þeim yfir­lýs­ingum eða standa í skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum til að leysa kjara­deil­ur.“

Hann segir að í stað þess að standa í frek­ari skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum vilji hann bjóða Sól­veigu Önnu Jóns­dótt­ur, for­manni Efl­ing­ar, til fundar til að ræða hina erf­iðu stöðu við­ræðna og hvar ber á milli aðila.

Þetta segir Dagur í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Face­book rétt í þessu sem við­bragð við erindi sem samn­inga­nefnd Efl­ingar sendi honum fyrr í dag og fór fram á svar fyrir klukkan 16. Í við­brögðum Dags seg­ist hann fagna því að Efl­ing opni á að fresta verk­föllum og seg­ist standa við allt sem hann sagði í Kast­ljósi á sínum tíma. „Gott til­boð borg­ar­innar um að hækka laun Efl­ing­ar­fólks hjá borg­inni liggur fyr­ir, með sér­stakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvenna­stétta. Til­boðið er á grunni lífs­kjara­samn­ing­anna, með leng­ingu orlofs og útfærslu á stytt­ingu vinnu­vik­unn­ar.“

Auglýsing
Í morgun bauðst Efl­ing til að fresta verk­­falls­að­­gerðum í tvo sól­­­ar­hringa gegn því að Dagur veitti skrif­­lega stað­­fest­ingu á „Kast­­ljós­stil­­boð­in­u“, en þar var vísað í yfir­lýs­ingar hans í Kast­ljósi 19. febr­úar þar sem hann ræddi um 110 þús­und króna grunn­­launa­hækkun á samn­ings­­tíma fyrir ófag­lærðan Efl­ing­­ar­­starfs­­mann. „Heild­­stætt til­­­boð í þá veru hefur ekki komið fram á samn­inga­fundum þrátt fyrir athuga­­semdir og óskir samn­inga­­nefndar Efl­ing­­ar,“ sagði í til­­kynn­ing­unn­i. 

Samn­inga­nefnd Efl­ingar sendi mér erindi fyrr í dag, sem ein­osg fyrr var sent beint í fjöl­miðla. Ég sendi eft­ir­far­and­i...

Posted by Dagur B. Egg­erts­son on Tues­day, March 3, 2020



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent