Ákveðið hefur verið að fresta ársfundi Landsvirkjunar um óákveðinn tíma vegna COVID-19. Fundurinn átti að fara fram á Hilton Reykjavik Nordica á morgun, fimmtudaginn 5. mars. Tilkynnt verður um nýja dagsetningu síðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun í dag.
„Starfsemi Landsvirkjunar er mikilvægur hluti af innviðum samfélagsins. Jafnan sækja fleiri hundruð gesta ársfundi Landsvirkjunar, auk fjölda starfsmanna, hvaðanæva að af landinu. Því var ákveðið að grípa til þessara varúðarráðstafana,“ segir í tilkynningunni.
Auglýsing