Pósturinn mun fella niður geymslugjöld á pósthúsum að minnsta komsti til 1. apríl næstkomandi en þetta er gert til að koma til móts við viðskiptavini sem eru heima í sóttkví eða í einangrun. Eftir þann tíma verður staðan tekin aftur og ákveðið hvort framhald verði á niðurfellingunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.
Þá vill Pósturinn biðla til þeirra sem eru heima í sóttkví eða einangrun að grípa til viðeigandi ráðstöfunar og heyra í fyrirtækinu ef þeir eiga von á sendingu. Þá telja forsvarsmenn Póstsins það vera gríðarlega mikilvægt að allir taki höndum saman til að hefta útbreiðslu COVID-19 og vilji þau ekki láta sitt eftir liggja. „Einfaldasta leiðin til að hafa samband við okkur ef þú átt von á sendingu er að hringja í símanúmerið sem er í SMS skilaboðinu sem við sendum á undan okkur á kvöldin,“ segir í tilkynningunni.
Leiðbeiningar til að hafa samband:
Ef þú átt von á sendingu skráðu þig inn á minnpostur.is með rafrænum skilríkjum og skráðu GSM númerið, einnig er hægt að greiða fyrir sendingar inni á síðunni Þú færð SMS frá okkur um hvenær er von á sendingunni Hringdu í okkur og tilkynntu okkur um aðstæður Starfsmaður skilur pakkann eftir samkvæmt leiðbeiningum
Hafir þú ekki, einhverra hluta vegna, fengið SMS eða ert staðsett(ur) á landsbyggðinni og veist að þú átt von á sendingu en ert í sóttkví eða einangrun hvetjum við þig til að hafa samband við okkur í síma 580-1245. Einnig er hægt að nálgast þessar leiðbeiningar á www.posturinn.is/sottkvi.
Halda áfram að senda til landsmanna
Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðssviðs Póstsins, segir í tilkynningunni að þau ætli að sjálfsögðu að halda áfram að koma sendingum til landsmanna hratt og örugglega.
„Raunar trúum við því að þessi leið, þ.e. heimkeyrsla þar sem einn einstaklingur kemur sendingu til skila sé með öruggari leiðum til að berjast gegn útbreiðslunni svo lengi sem fyllstu varúðar sé gætt. Það er þess vegna sem við erum að biðla til landsmanna að láta okkur vita ef þeir eru í sóttkví eða einangrun þannig að við getum brugðist við með viðeigandi hætti og lagt okkar að mörkum til að hefta útbreiðslu veirunnar,“ segir hún.