Icelandair fellur um 22 prósent í fyrstu viðskiptum

Ferðabannið sem Bandaríkin settu á í nótt hefur gríðarleg áhrif á markaðsvirði Icelandair. Það hrundi við opnun markaða.

icelandair_737MAX_big2.jpg
Auglýsing

Hluta­bréf í Icelandair féllu um 22 pró­sent í fyrstu við­skiptum í Kaup­höll Íslands í morg­un. Alls lækk­aði úrvals­vísi­talan um rúm­lega níu pró­sent í fyrstu við­skipt­um.

Gengi Icelandair er sem stendur 3,9 krónur á hlut. Gengi bréfa í félag­inu hefur ekki verið lægra frá því í jan­úar 2011. Mark­aðsvirði Icelandair er nú um 21,2 millj­arðar króna en það fór niður fyrir 30 millj­arða króna í fyrsta skipti í átta ár í byrjun viku. Þegar mark­aðsvirði var hæst, í apríl 2016, var það 191,5 millj­arðar króna. Síðan þá hefur hlutafé í Icelandair verið aukið um rúm­lega fimm millj­arða króna en mark­aðsvirðið samt komið niður í ofan­greinda tölu.

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu nú er tíma­bundið ferða­­bann banda­rískra stjórn­­­valda til og frá Evr­­ópu, sem gildir í 30 daga frá 14. mar­s. Það mun hafa veru­­leg áhrif á flug­­á­ætl­­un Icelanda­ir á tíma­bil­inu og mun félagið draga enn frekar úr fram­­boði á flugi í mars og apr­íl, umfram það sem áður hefur verið til­­kynnt.

Í nýrri til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér rétt fyrir klukkan 10 í morgun var ítrekað að allt flug hjá Icelandair verði á áætlun í dag og á morg­un. „Þegar ferða­bannið tekur gildi á laug­ar­dag, verður flug til eft­ir­far­andi áfanga­staða Icelandair í Banda­ríkj­unum á áætl­un: New York (JFK og EWR), Chicago, Seattle og Was­hington DC en ferða­bann gildir þá fyrir alla sem dvalið hafa á Schengen svæð­inu, nema banda­ríska rík­is­borg­ara. Þann 14.-16. mars verður öllu flugi til Boston, Minn­ea­polis, Den­ver og Orlando aflýst. Flug frá Orlando og Den­ver laug­ar­dag­inn 14. mars verður á áætl­un. Öll flug til Evr­ópu eru á áætl­un. Ferða­bannið gildir ekki um frakt­flutn­inga.“

Auglýsing
Í  til­­kynn­ingu sem félagið birti i Kaup­höll í morg­un, fyrir opnun mark­aða, sagði að alls hafi verið um 490 flug­­­ferðir eru áætl­­aðar til Banda­­ríkj­anna á tíma­bil­inu. „Ljóst er að útbreiðsla COVID-19 veirunnar hefur veru­­leg áhrif á ferða­lög um allan heim. Fjár­­hags­­leg áhrif þessa á Icelanda­ir Group eru enn óviss en eins og til­­kynnt hefur verið um er félagið að greina mög­u­­legar sviðs­­myndir og mót­væg­is­að­­gerðir í ljósi stöð­unn­­ar. Fjár­­hags­­staða Icelanda­ir Group er sterk og ­­lausa­fjár­s­­staða ­­fé­lags­ins nam rúmum 39 millj­­örðum króna (301,6 millj­­ón­ir ­­banda­­ríkja­dala) í árs­­lok 2019 og er á sama stað í dag.“

Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Mark­aðsvirðið er um einn þriðji af eigin fé félags­ins og rétt rúmur helm­ingur af lausu fé þess.

Til­kynnt í sögu­legri ræðu for­seta í nótt

Don­ald Trump, for­­seti Banda­­ríkj­anna, greindi frá aðgerð­unum í ávarpi í nótt. Ferða­­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga frá og með kom­andi föst­u­degi, mun virka þannig að öllum íbúum landa sem til­­heyra Schen­­gen-­­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­­ópu, verður meinað að koma til Banda­­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­­is­­borg­­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­­ríkj­unum munu fá að ferð­­ast ef þeir vilja en sam­­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í nótt á vef heima­varn­­ar­ráðu­­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schen­­gen-­­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­­velli þar sem sér­­stakar ráð­staf­­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Allar líkur eru því til þess að flug milli Banda­­ríkj­anna og landa sem til­­heyra Evr­­ópska efna­hags­­svæð­inu muni að mestu liggja niðri á meðan að bannið stendur yfir, enda ólík­­­legt að flug­­­fé­lög muni fljúga mikið þegar þorri Evr­­ópu má ekki koma til Banda­­ríkj­anna, og Banda­­ríkja­­menn hafa verið hvattir til að fara helst ekki til Evr­­ópu. 

Það mun hafa gríð­­ar­­leg áhrif rekstur Icelanda­­ir. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent