Nasdaq Iceland hf., sem rekur íslensku kauphöllina, hefur ákveðið að breyta sveifluvörðum (e. Dynamic Volatility Guards) fyrir öll hlutabréf, kauphallarsjóð og skuldabréf sem skráð eru á Aðalmarkað og First North 12. mars 2020 vegna óvenjulegra aðstæðna á markaði.
Í tilkynningu vegna þessa segir að viðmið fyrir sveifluverði verði tvöfölduð og viðmið fyrir niðurfellingu viðskipta verði í samræmi við gildandi sveifluverði fyrir hvert verðbréf.
Auglýsing