Ríkisstjórn Íslands samþykkti í kvöld frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, sem felur í sér breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðarsjóð launa, vegna sérstakra aðstæðna á vinnumarkaði.
Í frumvarpinu felst að þegar atvinnuleysisbætur eru greiddar samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitanda koma föst laun launamanns ekki sjálfkrafa til skerðingar á fjárhæð atvinnuleysisbóta, enda hafi starfshlutfall verið lækkað hlutfallslega um 20 prósent hið minnsta og 50 prósent hið mesta. í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að greiðslur atvinnuleysisbóta á móti launum frá vinnuveitanda muni „greiðast í hlutfalli af heildargreiðslum tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun hlýtur með breytingunni einnig sérstaka heimild til að óska eftir upplýsingum og gögnum frá vinnuveitendum þegar stofnunin telur ástæðu vera til í þessu samhengi.“
Heildargreiðslur til launafólks munu ekki geta numið hærri fjárhæð en 80 prósent af meðaltali heildarlauna launþega á síðustu þremur mánuðum fyrir minnkað starfshlutfall, og eigi meira en 650 þúsund krónum í heildina.
Breytingunum er ætlað að koma til móts við vinnuveitendur og launafólk í ljósi fordæmalausra aðstæðna hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 veirunni. Breytingarnar munu gilda frá 15. mars til 1. júlí næstkomandi og í tilkynningunni segir að markmið þeirra sé að „aðstoða vinnuveitendur við að halda ráðningarsambandi við starfsfólk sitt, þar til aðstæður batna.“
Ásmundur Einars segist vonast til þess að atvinnurekendur bregðist við þessum breytingum á þann veg að halda ráðningasamböndum við starfsfólk sitt eins og nokkur kostur er í stað þess að ráðast í uppsagnir. „Slík niðurstaða væri samfélaginu öllu til heilla. Við horfumst nú í augu við fordæmalausar aðstæður, m.a. á vinnumarkaði, og vonumst öll til þess að þessar aðstæður gangi sem hraðast yfir en við þurfum öll að hjálpast að til þess að lágmarka þann skaða sem af þessum aðstæðum hlýst.“