Trump: Kemur til greina að aflétta ferðabanni á ákveðin ríki

Bandaríkjaforseti segir að Bretland gæti bæst á lista yfir þau lönd sem ferðabannið nær yfir. Það komi líka til greina að taka ríki af listanum.

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði á blaða­manna­fundi í dag að til greina kæmi að bæta Bret­landi á lista yfir þau Evr­ópu­lönd sem ferða­bannið til Banda­ríkj­anna sem hann lýsti í vik­unni yfir að sett yrði á. 

Þá kæmi einnig til greina að end­ur­skoða veru ann­arra ríkja sem eru sem stendur á list­an­um. Á meðal þeirra ríkja sem ferða­bann­ið, sem tekur gildi á mið­nætti, nær yfir er Ísland.

Trump greindi frá því að ferða­bannið yrði sett á aðfara­nótt fimmtu­dags. ­Ferða­bann­ið, sem á að standa yfir í 30 daga, mun að óbreyttu virka þannig að öllum íbúum landa sem til­heyra Schen­gen-­svæð­inu, þar á meðal Ísland og þorri Evr­ópu, verður meinað að koma til Banda­ríkj­anna á tíma­bil­inu. Banda­rískir rík­is­borg­arar og aðrir sem eru með fasta búsetu í Banda­ríkj­unum munu fá að ferð­ast ef þeir vilja en sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu sem birt var í kjöl­far yfir­lýs­ingar Trump um ferða­bannið á vef heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins mun þeim banda­rísku far­þegum sem dvalið hafa á Schen­gen-­svæð­inu hleypt inn í landið í gegnum valda flug­velli þar sem sér­stakar ráð­staf­anir verða gerðar til að skima fyrir smiti.

Auglýsing
Sú stað­reynd, að Banda­ríkja­menn eru allra þjóða lík­leg­astir til að heim­sækja Ísland heim, gera Banda­ríkin að stærsta ein­staka við­skipta­land Íslands í þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem í felst aðal­lega sala á ferða­þjón­ustu. Á árinu 2018, þegar sá þjón­ustu­út­flutn­ingur náði hámarki, var hann 32 pró­sent af öllum heild­ar­út­flutn­ingi Íslands á þjón­ustu. Sam­kvæmt bráða­birgð­ar­tölum Hag­stofu Íslands fyrir síð­asta ár var hann 29,2 pró­sent það árið. Alls var um að ræða 202 millj­arða króna í þjón­ustu­tekjum sem koma frá þessu eina land­i. 

Þjón­ustu­jöfn­uður Íslands, mun­ur­inn á útfluttri og inn­fluttri þjón­ustu, var jákvæður um 239 millj­arða króna í fyrra sam­kvæmt bráða­birgða­töl­um. Heild­ar­tekjur íslenska þjóð­ar­bús­ins af þjón­ustu­út­flutn­ingi, sem aftur er að lang­mestu leyti ferða­þjón­ustu­tengd­ur, voru 692 millj­arðar króna í fyrra. Þessar tekjur eru nú ekki að koma inn í landið að stóru leyti ekki að koma inn í landið og algjör óvissa ríkir um hvernig háanna­tím­inn í ferða­þjón­ustu, sem er sum­ar­tím­inn, muni koma út þótt að við­búið sé að sam­dráttur upp á tugi pró­senta muni eiga sér stað.

Íslensk stjórn­­völd komu á fram­­færi í gær­morgun hörðum mót­­mælum við aðgerð­un­um. Guð­laugur Þór Þórð­­ar­­son utan­­­rík­­is­ráð­herra átti þá sam­­tal við send­i­herra Banda­­ríkj­anna, og í kjöl­farið fund með stað­­gengli hans, til þess að koma mót­­mælum á fram­­færi. Guð­laugur Þór á að eiga fund með Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í næstu viku vegna máls­ins. Þar verður farið fram á að Ísland verði und­an­skilið frá ferða­bann­inu, meðal ann­ars vegna land­fræði­legrar legu lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent