Virðist vera sem um eitt prósent Íslendinga sé með veiruna

Fyrstu niðurstöður úr skimunum Íslenskrar erfðagreiningar benda til þess að mun færri séu með veiruna í íslensku samfélagi en að fyrri skimanir, á fólki sem hafði verið í samskiptum við smitaða, bentu til.

þórólfur Guðnason
Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varn­ar­læknir segir að fyrstu nið­ur­stöður sem borist hafa úr skimunum Íslenskrar erfða­grein­ingar bendi til þess að um eitt pró­sent lands­manna sé með veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um. Frá þessu greindi hann í Silfr­inu á RÚV í dag. 

Fyrri próf­anir hafa aðal­lega verið á fólki sem kom frá helstu háhættu­svæð­um. Í morgun höfðu 161 manns greinst þegar búið var að taka 1.545 sýni. Það þýðir að um tíu pró­sent þeirra sem höfðu verið próf­aðir úr þeim hópi sem er í sótt­kví eða ein­angrun höfðu greinst með veiruna. Próf­anir Íslenskrar erfða­grein­ingar á öðrum hópum sýnir að smit eru mun óal­geng­ari þar, eða í kringum eitt pró­sent. Þórólfur sagði að frek­ari nið­ur­stöður ættu að koma frá Íslenskri erfða­grein­ingu í dag.

Á síð­unni covid.is kemur fram að í morgun klukkan 7:30 hafi alls 1.545 sýni verið tek­in. Klukkan 9:30 hafði teknum sýnum fjölgað 1.868, eða um 323, án þess að neitt nýtt smit hefði greinst. Allar líkur eru á að þar sé um að ræða skimanir sem fram­kvæmdar hafa verið af Íslenskri erfða­grein­ingu.

Auglýsing
Þórólfur sagði einnig að hann hefði efa­semdir um að það myndi skila árangri að loka landa­mærum, eins og mörg ríki eru að gera. Hér­lendis hafi verið lögð áherslu á að ein­angra veiruna og halda henni frá þeim sem eru við­kvæm­ast­ir. Það hafi gengið vel. 

Skimanir Íslenskrar erfða­grein­ingar hófust á föstu­dags­morgun og unnið er úr nið­­ur­­stöðum þeirra um næt­­ur. Þús­undir Íslend­inga bók­uðu tíma í skimun eftir COVID-19 ­sjúk­­­dómnum hjá Íslenskri erfða­­­grein­ingu eftir að opnað var fyrir bók­­­anir á fimmt­u­­dags­­kvöld og fljót­­­lega þurfti að bæta við tímum vegna mik­illar eft­ir­­­spurn­­­ar.

Í til­­kynn­ingu frá Íslenskri erfða­­grein­ingu sem send var út á föstu­dag sagði að mik­ill meiri­hlut­i þeirra sem smit­­­ast verði ekki alvar­­­lega veik­­­ir. Flestir sem komi í skimun hafi aldrei fundið fyrir ein­­­kennum og séu því lík­­­­­lega ekki smit­andi. Það sama eigi við alla starfs­­­menn í hús­inu, hvort sem þeir starfa við skimanir eða ekki. Það sé því ekki meiri hætta á ferðum í hús­inu en ann­­­ars staðar í borg­inni þar sem fólk kemur sam­­­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent