Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar hááhættusvæðin vegna COVID-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum í dag.
Þá segir í tilkynningunni að frá og með fimmtudeginum 19. mars 2020 sé Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma.
Undanþegnir þessu er flugáhafnir og áhafnir flutningaskipa.
Á upplýsingasíðunni covid.is kemur fram að fólk þurfi að fara í sóttkví þegar það hefur mögulega smitast en upplifir engin einkenni.
Þú gætir hafa smitast ef þú
- hefur verið á ferðalagi á skilgreindum áhættusvæðum
- hefur umgengist fólk sem svo greinist með COVID-19
Aðrir á þínu heimili sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta verið samtímis í sóttkví á sama stað. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um sóttkví á heimilinu, segir á síðunni.
Takmarka snertingu við þann í sóttkví
Ef einhver á heimilinu hefur verið útsettur fyrir smiti og fer í sóttkví heima en ekki þú, er æskilegt að þú sért ekki á sama stað. Ef þú vilt ekki eða getur ekki farið af heimilinu er nauðsynlegt að takmarka snertingu eins og þú getur við þann sem er í sóttkví.
Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá síðasta mögulega smiti eða þar til einkenni koma fram. Ef þú ferð að upplifa einkenni og sýking er staðfest í kjölfarið þarf að fara eftir leiðbeiningum um einangrun í heimahúsi, að því er fram kemur á covid.is.