Ísland mun taka þátt í ferðabanni ásamt öðrum Schengen ríkjum. Bannið mun ekki hafa bein áhrif á vöruflutninga heldur á þetta einungis við um ferðamenn utan Schengen sem verður þá ekki lengur heimilt að koma til landsins.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra greinir frá þessu í stöðuuppfærslu á Facebook. Þar segir hún að komum ferðamanna væri að mestu sjálfhætt vegna veirunnar.
„Þrátt fyrir að ferðabann hafi ekki verið ofarlega hjá okkar sérfræðingum sem árangursrík aðferð gegn útbreiðslu kórónuveirufaraldursins þá hefur verið biðlað til okkar að taka þátt í lokun landamæra ESB- og Schengen-ríkjanna og við eigum óhægt um vik að skorast undan því.“
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mæltist til þess á mánudag öll ríki Evrópusambandsins (ESB), sem og nágrannalönd sem standa utan þess, myndu banna öll „ónauðsynleg ferðalög“ til Evrópu og setja á 30 daga ferðabann sem næði í raun til alls heimsins. Einungis Evrópubúar fengju þá að ferðast til Evrópu, nema í undantekningartilfellum.
Áslaug Arna segir í stöðuuppfærslunni að alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf ríkja sé mikilvægt í baráttunni við veiruna og að Íslandi þurfi á samstarfi ESB- og EES-ríkjanna að halda. Á grundvelli þess og mati á stjórnvalda á hagsmunum þá hafi verið ákveðið að taka þátt í aðgerðum Schengen-ríkjanna og loka hér ytri landamærum. „Við höfum ítrekað bent á okkar sérstöðu innan svæðisins síðustu daga. Við erum eyja langt frá öðrum löndum og við eigum meira undir flugsamgöngum og við höfum því beðið um að sérstakt tillit verði tekið til okkar þegar við sjáum fyrir að við viljum fara aflétta þessari lokun.“
Tuttugu og tvö ríki ESB eru í Schengen-samstarfinu, auk Íslands, Noregs, Sviss og Liectenstein. Bretland og Írland eru ekki hluti af Schengen-svæðinu og ekki heldur Króatía, Búlgaría, Kýpur né Rúmenía.
Þegar höfðu mörg ríki innan Schengen lokað landamærum áður en að tilkynningin barst á mánudag, þar af tíu ríki innan ESB.