Styðja við heimili sem eiga við greiðsluvanda að stríða

Ríkisstjórnin hefur leitað heimildar Alþingis til að veita fyrirtækjum í vanda viðbótarlán, í samstarfi við Seðlabanka Íslands.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Fyr­ir­vara­lítið tekju­fall heim­ila skapar þeim vanda og mikla ó­vissu. Lán­veit­endur sem eiga aðild að Sam­tökum fjár­mála­fyr­ir­tækja eða Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða munu bregð­ast við með úrræðum til að styðja við heim­il­i ­sem eiga við greiðslu­vanda að stríða. Vel verður fylgst með stöðu heim­ila og ein­stak­linga.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar frá 10. mars segir að ­stjórn­völd muni efna til virks sam­ráðs við Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja um við­brögð þeirra við fyr­ir­sjá­an­legum lausa­fjár- og greiðslu­örð­ug­leik­um ­fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. „Síðan yfir­lýs­ingin var gefin hefur útbreiðsla far­ald­urs­ins verið hröð og fjöl­mörg ríki hafa gripið til umfangs­mik­illa ráð­staf­ana til að hefta hana. Þær aðgerðir hafa víð­tæk áhrif á efna­hags­horf­ur, allt atvinnu­líf, heim­ili og ein­stak­linga,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Stjórn­völd hafa átt sam­ráð við Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða um þá stöðu sem upp er komin og þau við­brögð sem rétt er að grípa til í því skyni að milda áhrif á heim­ili og fyr­ir­tæki. Er ­Sam­keppn­is­eft­ir­litið upp­lýst um það og gerir stofn­unin ekki athuga­semdir við að að­ilar á lána­mark­aði eigi með sér sam­starf um und­ir­bún­ing að sam­komu­lagi um ­fyr­ir­greiðslur í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er. Slíkt sam­komu­lag er þó háð sam­þykki ­Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Af þessu til­efni vilja rík­is­stjórn Íslands, Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða upp­lýsa um eft­ir­far­andi:

Sam­tök fjár­mála­fyr­ir­tækja og Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða mun­u birta opin­ber­lega sam­ræmd við­mið um greiðslu­fresti á lánum og frekari ­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja sem verða fyrir tekju­falli vegna far­ald­urs­ins.

Rík­is­stjórnin hefur leitað heim­ildar Alþingis til að veita ­fyr­ir­tækjum í vanda við­bót­ar­lán, í sam­starfi við Seðla­banka Íslands. Kveð­ið verður á um nán­ari skil­yrði og útfærslu þessa úrræðis í samn­ingi við ­Seðla­bank­ann, en því er ætlað að styrkja enn frekar getu lána­stofn­ana til að ­mæta aðsteðj­andi vanda.

Fyr­ir­vara­lítið tekju­fall heim­ila skapar þeim vanda og mikla ó­vissu. Lán­veit­endur sem eiga aðild að Sam­tökum fjár­mála­fyr­ir­tækja eða Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða munu bregð­ast við með úrræðum til að styðja við heim­il­i ­sem eiga við greiðslu­vanda að stríða. Vel verður fylgst með stöðu heim­ila og ein­stak­linga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent