Óttast að fjármálastofnanir ætli sér að hagnast á neyð fólks

Forseti ASÍ segist hafa áhyggjur af því að þau úrræði sem standa fólki til boða vegna tímabundins samdráttar vegna COVID-19 faraldursins séu oft og tíðum bjarnargreiði.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Auglýsing

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, gerir úrræði fjár­mála­stofn­ana að umtals­efni á Face­book í dag en hún seg­ist hafa áhyggjur af því að þau úrræði sem standa fólki til boða vegna tíma­bund­ins sam­dráttar séu oft og tíðum bjarn­ar­greiði og að ein­hverjar fjár­mála­stofn­anir ætli sér bein­línis að hagn­ast á neyð fólks.

Þá segir hún að tölu­verður munur sé til dæmis á því að lengja í lánum fólks eða að fresta greiðslum fram á næsta ár, þegar óvíst er hver staða fólks verði þá.

„Sömu­leiðis þarf að gæta sín vel á þeim kostn­aði sem fylgir þessum breyt­ing­um, í ein­hverjum til­vikum er hann úr öllu sam­heng­i,“ skrifar hún.

Auglýsing

Kæru vin­ir, ég hef tölu­verðar áhyggjur af því að þau úrræði sem standa fólki til boða vegna tíma­bund­ins sam­dráttar sé...

Posted by Drífa Snæ­dal on Wed­nes­day, March 25, 2020


Verður að upp­lýsa ein­stak­linga með skýrum hætti hvaða áhrif úrræðin hafa

ASÍ sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun vegna áhrifa efna­hags­sam­dráttar á heim­il­in. Í henni segir að heims­far­aldur vegna Covid-19 hafi nú áhrif á atvinnu og afkomu fjöl­margra heim­ila. Alþýðu­sam­band Íslands leggi ríka áherslu á að stjórn­völd, fjár­mála­stofn­anir og aðrir kröfu­hafar komi til móts við fólk í þessum erf­iðu aðstæð­um. Öllu máli skipti nú að tryggja afkomu­ör­yggi heim­ila þannig að öllum sé kleift að setja eigin heilsu og ann­arra í for­gang.

„Liður í þessu er að opin­berir aðil­ar, sveit­ar­fé­lög, fjár­mála­stofn­an­ir, leigu­fé­lög, líf­eyr­is­sjóðir og aðrir kröfu­hafar sýni sann­girni og sveigj­an­leika varð­andi greiðslu­fresti á meðan mesta óvissan stendur yfir. Mik­il­vægt er að inn­heimtu­kostn­aður og drátt­ar­vextir verði ekki lagðir á van­skil og fólki gef­ist tæki­færi til að dreifa greiðslum og lengja í lánum svo greiðslu­byrði fari ekki úr hófi fram. ­Bankar, fjár­mála­stofn­an­ir, líf­eyr­is­sjóðir og leigu­fé­lög hafa þegar til­kynnt um úrræði fyrir heim­ili sem þurfa aukið svig­rúm við þessar aðstæð­ur. 

Alþýðu­sam­bandið beinir því til þess­ara aðila að þeir hafi ávallt að leið­ar­ljósi að upp­lýsa ein­stak­linga með skýrum og greina­góðum hætti um áhrif þeirra úrræða sem í boði eru á greiðslu­byrði til lengri og skemmri tíma og hvaða leiðir séu færar til að draga úr lang­tíma­á­hrifum á fjár­hag heim­il­anna. Þá skuli öllum kostn­aði sem inn­heimtur er vegna úræð­anna haldið í lág­marki,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Alþýðu­sam­bandið telur jafn­framt með öllu óásætt­an­legt að kröfu­hafar geti nýtt sér þá neyð sem blasir við mörgum heim­ilum við núver­andi aðstæð­ur. ASÍ muni á næst­unni fylgj­ast náið með þeim greiðslu­erf­ið­leika­úr­ræðum sem boðið verður upp á og þeim þjón­ustu­gjöldum sem inn­heimt verða vegna þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent