Alls ekki stefnan að nota börn til að ná hjarðónæmi

Á Landspítalanum liggja nú fimmtán manns með COVID-19, sjúkdóminn sem nýja kórónuveiran veldur. Tveir eru á gjörgæslu og annar þeirra er í öndunarvél. 2000 þúsund sýnatökupinnar eru komnir til landsins.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

17% sýna sem tekin voru á veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans ­vegna kór­ónu­veirunnar síð­asta sól­ar­hring­inn voru jákvæð. Aðeins 0,2% sýna Íslenskrar erfða­grein­ingar reynd­ust jákvæð.

Þetta kom fram í máli Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varn­ar­læknis á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Sagði hann lágt hlut­fall hjá Íslenskri erfða­grein­ingu sé speg­ill á sam­fé­lags­smit að ein­hverju leyti.

Hann greindi einnig frá því að nú liggja fimmtán manns á sjúkra­húsi vegna COVID-19. Tveir eru á gjör­gæslu Land­spít­al­ans og annar þeirra er í önd­un­ar­vél.

Auglýsing

Síð­asta sól­ar­hring­inn hafa 89 ein­stak­lingar greinst með­ veiruna. Stað­fest smit í land­inu eru því orðin 737. Af nýju smit­unum voru 57% ­greind hjá fólki sem var þegar í sótt­kví. Þetta sagði Þórólfur und­ir­strik­a ­mik­il­vægi þess úrræðis sem beitt hefur verið hér á landi allt frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Margir nýir pinnar

Tvö þús­und nýir sýna­tökupinnar komu til lands­ins í dag og von er á fleiri pinnum í vik­unni. Þórólfur sagði að enn væri ekki útséð með að p­innar sem stoð­tækja­fyr­ir­tækið Össur er með á lager geti nýst við ­rann­sókn­irn­ar. Nið­ur­stöður úr öryggis­prófum á þeim eru vænt­an­legar inn­an­ ­skamms. „Þannig að við erum ekki að horfa upp á skort á pinnum og von­and­i verður það ekki í fram­tíð­inn­i.“

Veiru­fræði­deildin fær alla pinn­ana til notk­un­ar. 

Smitrakn­ing­arappið á loka­metr­unum

Smitrakn­ing­arapp er í und­ir­bún­ingi á vegum land­lækn­is­. Hönnun þess er á loka­stigi og í kjöl­farið fer fram prófun í litlum hóp­um. Sam­bæri­leg öpp hafa verið nýtt hjá Suð­ur­-Kóreu­mönnum og í Singapúr. Allt er málið unnið í góðri sam­vinnu við Per­sónu­vernd. Fólk getur skráð sig í appið og er hug­mynd­in að rekja ferðir fólks ef á þarf að halda.

­Sótt­varna­læknir ítrek­aði að smit meðal barna yngri en tíu ára er enn mjög lítið og sömu sögu er að segja frá öðrum Norð­ur­lönd­um. Í bréfi sem sent var í dag hvöttu hann og land­læknir for­eldra heil­brigðra barna til að senda þau í skól­ann. 

Ekki mark­miðið að búa til sýk­ingar hjá ákveðnum hópum

Á fund­inum var hann spurður hvort að með því að hvetja til­ þess að börn færu í skól­ann væri verið að reyna að ná hjarð­ó­næmi með þeim hætt­i. „Smit sem verður í sam­fé­lag­inu mun skapa hjarð­ó­næmi,“ sagði Þórólf­ur. „Við ­getum ekki [full­kom­lega] komið í veg fyrir smit. Það er kannski hægt með mjög hörðum aðgerð­um, það myndi kosta mjög mik­ið, og myndi þýða það að við myndum fá far­ald­ur­inn aftur til okk­ar. Það er engin sér­stök stefna hjá okkur að búa til­ ­sýk­ingar úti í sam­fé­lag­inu hjá ákveðnum hóp­um. Alls ekki. Við erum að reyna að hægja á og minnka far­ald­ur­inn eins og mögu­legt er og við erum að vernda þá sem eru við­kvæmir fyr­ir, loka þá sem mest af. Það er aðal­mark­mið­ið. Á sama tíma vitum við að við fáum hjarð­ó­næmi sem mun hjálpa okkur síðar meir. En það er ekki mark­miðið í sjálfu sér.“

Bætti hann við að Sótt­varna­stofnun Evr­ópu væri ekki að mæla sér­stak­lega með skóla­lok­un­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent