164 sagt upp hjá Bláa lóninu

Bláa lónið ætlar að setja meirihluta þeirra starfsmanna sem eftir verða hjá fyrirtækinu á hlutabótaleiðina.

bláa lónið 3.8.2017
Auglýsing

Alls var 164 starfs­mönnum Bláa lóns­ins sagt upp í dag. Auk þess ætlar fyr­ir­tækið að bjóða yfir 400 starfs­mönnum af þeim 600 sem eftir verða að nýta sér hluta­bóta­leið­ina sem er hluti af aðgerð­ar­pakka stjórn­valda, og gerir það að verkum að ríkið greiðir allt að 75 pró­sent launa þeirra úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði.

Frá þessu er greint á mbl.is. Þar segir að í til­­kynn­ingu sem Grím­ur Sæ­­mund­sen, for­­stjóri Bláa lóns­ins, sendi til starfs­­fólks fyrr í dag segi  hann aðgerð­ina þung­­bæra en óhjá­­kvæmi­­lega í ljósi aðstæðna. Bláa lónið lok­aði fyrir þremur dögum síðað og verður lokað til 30. apríl hið minnsta.

Auglýsing

Rekstur Bláa lóns­ins hefur gengið afar vel síð­ustu ár. Á aðal­­fundi Bláa lóns­ins í fyrra var sam­­þykkt að greiða út um 30 millj­­ónir evra, þá alls tæp­­lega 4,3 millj­­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­­stöðu árs­ins 2018. Það var næstum því tvö­­falt hærri greiðsla en var greidd út árið 2018 í arð, þegar slík greiðsla nam 16 millj­­ónum evra, eða tæp­­lega 2,3 millj­­arðar króna á núvirð­i. 

Í árs­­reikn­ingi Bláa lóns­ins fyrir árið 2018 kom fram að rekstr­­ar­­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hefðu verið 122,6 millj­­ónir evra, um 17,4 millj­­arðar króna miðað við gengið þegar síð­asti aðal­fundur fór fram, á því ári. Það var aukn­ing um 20 pró­­sent frá árinu 2017 þegar þær voru 102,3 millj­­ónir evra, eða um 14,5 millj­­arðar króna á gengi síð­asta sum­ar­s. 

Alls nam hagn­aður Bláa lóns­ins á árinu 2018 26,4 millj­­ónum evra, um 3,7 millj­­örðum króna. Hann dróst lít­il­­lega saman milli ára en hann var 31 milljón evra, um 4,4 millj­­arðar króna á gengi síð­asta sum­ars, árið 2017. Það þýðir að arð­greiðslan sem sam­­þykkt var á aðal­­fundi fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra­sumar var hærri en sem nam hagn­aði Bláa lóns­ins á árinu 2018.

Stærsti eig­andi félags­­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­­ar­hlut upp á 39,1 pró­­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­­ar­halds­­­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms Sæmund­­sen, for­­stjóra Bláa lóns­ins, og Eðvard Júl­í­us­­son­­ar. Kólfur keypti tæp­­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018. 

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­­sjóða, sem keypti 30 pró­­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­­lega fimm­­­földu bók­­­færðu virði hlut­­­ar­ins í maí síð­­ast­liðn­­um, eða á 15 millj­­arða króna. 

Salan á hlutnum í Bláa Lón­inu fór fram eftir að Jarð­varmi slhf., félag í eigu sömu líf­eyr­is­­­sjóða, hafði eign­­­ast allt hlutafé í HS Orku skömmu áður. Miðað við þessi við­­skipti þá var Bláa lónið metið í heild sinni á 50 millj­­arða króna. 

Þriðji stærsti eig­and­inn með 8,7 pró­­sent hlut er Keila ehf., en stærsti eig­andi þess er áður­­­nefnd Hvatn­ing. 

Fjórðu og fimmtu stærstu hlut­haf­­arnir er félögin Hof­­garðar ehf. og Saffron ehf. með sitt hvorn 6,2 pró­­sent eign­­ar­hlut. Hof­­garðar er eign­­ar­halds­­­fé­lag í eigu Helga Magn­ús­­son­­ar, aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs, en Helgi er einnig stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins.

Saffron er í eigu Sig­­urðar Arn­gríms­­son­­ar, sem á líka hluti í Torg­i. 

Bog­­mað­­ur­inn ehf., félag í eigu Ágústu John­­son er einnig á meðal stærstu eig­enda með 2,4 pró­­sent eign­­ar­hlut. Ágústa er eig­in­­kona Guð­laugs Þórs Þórð­­ar­­sonar utan­­­rík­­is­ráð­herra. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent