Íslensk erfðagreining hefur nú lokið við að prófa sýnatökupinna sem fyrirtækið Össur átti á lager og er niðurstaðan sú að pinnarnir eru vel nothæfir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri erfðagreiningu í dag.
„Fyrstu niðurstöður í gær þóttu ekki gefa tilefni til bjartsýni en við nánari skoðun kom í ljós að gallar voru á prófuninni. Eftir að prófanir voru endurteknar í dag voru niðurstöðurnar marktækar,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að ljóst sé að pinnarnir sem eru 20.000 talsins leysi úr vandanum sem skortur á slíkum sýnatökupinnum var að skapa og næstu daga verði aftur prófað af fullum krafti fyrir COVID-19 í Turninum í Kópavogi.
Fréttatilkynning frá Íslenskri erfðagreiningu Pinnarnir frá Össuri eru nothæfir Íslensk erfðagreining hefur nú lokið...
Posted by Íslensk erfðagreining on Thursday, March 26, 2020