Dæmi eru um að atvinnurekendur hafi lækkað starfshlutfall starfsmanna en krefjist vinnuframlags umfram hið nýja hlutfall. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BSRB en ábendingar um þetta hafa borist BHM og BSRB, sem og aðildarfélögum bandalaganna, að því er fram kemur í sameiginlegri yfirlýsingu frá bandalögunum tveimur.
„Þetta gengur þvert gegn lagabreytingum sem Alþingi gerði nýverið til að auðvelda atvinnurekendum að halda starfsfólki og koma í veg fyrir uppsagnir vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa af völdum COVID-19 heimsfaraldursins,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að atvinnurekendur geti nú lækkað starfshlutfall allt niður í 25 prósent og geti starfsfólkið fengið hlutfallslegar atvinnuleysisbætur á móti. Óheimilt sé að krefjast vinnuframlags frá starfsfólki umfram hið nýja starfshlutfall, enda komi lækkun á því til vegna samdráttar í þjónustu fyrirtækja og fækkun verkefna.
BHM og BSRB hvetja stjórnendur fyrirtækja og stofnana til að fara í einu og öllu eftir lögunum og munu bregðast hart við ábendingum um brot. Þá minna heildarsamtökin á að þessum lagaheimildum sé ætlað að hafa jákvæð áhrif á vinnumarkaði á þessum erfiðu tímum. Þegar þessum tímabundnu þrengingum lýkur muni fyrirtækin þurfa aftur á sínum starfsmönnum að halda í hærra starfshlutfalli.
Það sé með öllu óviðunandi að fyrirtæki reyni að nýta sér aðstæður starfsmanna sem eru að leggja sitt af mörkum til að vinnustaðurinn komist í gegnum tímabundna erfiðleika með því að taka á sig kjaraskerðingu.