Aðeins tvö ný smit staðfest hjá Íslenskri erfðagreiningu

Í dag hafa 17.904 sýni verið tekin frá upphafi faraldursins. Síðasta sólarhringinn voru 910 sýni tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu og 510 hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Aðeins tvö ný smit greindust hjá ÍE.

Sýnataka
Auglýsing

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.135 hér á landi. Í gær voru þau 1.086 og hefur þeim því fjölgað um 49 á einum sól­ar­hring. Í dag eru 8.879 ein­stak­ling­ar í sótt­kví og hefur fækkað tölu­vert frá því í gær er fjöld­inn var 9.236.

Rúm­lega 6.200 manns hafa lokið sótt­kví.

Nú liggja 30 ­sjúk­lingar á sjúkra­húsi vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af tíu á gjör­gæslu, ­sam­kvæmt því sem fram kemur á síð­unni Covid.­is. Þar kemur einnig fram að 157 hafi náð sér af sjúk­dómnum til þessa.

Auglýsing

Í dag hafa 17.904 ­sýni verið tekin frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Síð­asta sól­ar­hring­inn voru 910 sýn­i ­tekin hjá Íslenskri erfða­grein­ingu og 510 hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Aðeins tvö ný smit greindust hjá ÍE. Sótt­varna­læknir hefur sagt að fá smit þar bendi til þess að sam­fé­lags­smit sé lít­ið. 

Hlut­fall smit­aðra sem greinst hafa á meðan þeir eru í sótt­kví er en um 50%. Þetta hef­ur ­sótt­varna­læknir sagt sýna nauð­syn sótt­kvíar til að hemja útbreiðslu far­ald­urs­ins.

Þess skal get­ið að mis­munur getur verið á tölum um sýna­tökur ann­ars vegar og fjölda smita hins ­vegar sem birtar eru á hverjum degi á Covid.­is. Skýr­ingin er sú að birt­ing ­upp­lýs­inga um smit taka mið af því hvenær sýnið var tekið en ekki hvenær það var greint.

Álagið mest á gjör­gæslu fyrir miðjan apríl

Í spálík­an­i ­vís­inda­manna við Háskóla Íslands sem upp­fært var í gær kemur fram að á með­an far­ald­ur­inn gengur yfir þá muni rúm­lega 1.700 manns á Íslandi grein­ast með­ COVID-19 sjúk­dóminn, en talan gæti náð nær 2.800 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er í nýj­ustu spánni gert ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan ­sjúk­dóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði senni­lega um 1.200 manns, en ­gæti viku seinna náð 1.800 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Nýja spá­in ­gerir ráð fyrir að á meðan að far­ald­ur­inn gengur yfir muni 120 manns þarfnast inn­lagnar á sjúkra­húsi, en gæti náð hátt í 200 manns.

„Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 100 ein­stak­ling­ar,“ segir í nýju spánni.

Þá er enn fremur gert ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 25 ein­stak­ling­ar veikj­ast alvar­lega, það er þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýnn­i ­spá er 44 ein­stak­ling­ar.

„Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apr­íl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það ver­ið 18 manns. Smá­vægi­leg hliðrun ald­urs­dreif­ingar í átt að fleiri greindum smit­u­m ­meðal ein­stak­linga yfir sex­tugt myndi auka álag á heil­brigð­is­þjón­ust­u tals­vert.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent