Íslensk heimili henda samtals 7.152 tonnum af nýtanlegum mat á ári hverju

Samkvæmt rannsókn Umhverfisstofnunar er mikið um matarsóun hér á landi en einstaklingur á Íslandi sóar að meðaltali um 90 kg af mat árlega.

Matarsóun, rusl
Auglýsing

Íslensk heim­ili henda að með­al­tali um 20 kg af nýt­an­legum mat á ári, 25 kg af ónýt­an­legum mat­ar­af­göng­um, 40 lítrum af drykkjum og 5 kg af mat­ar­olíu og fitu á hvern fjöl­skyldu­með­lim. Þetta kemur fram í ítar­legri rann­sókn Umhverf­is­stofn­unar á umfangi mat­ar­só­unar á Íslandi, þar sem 90 heim­ili og 80 fyr­ir­tæki tóku þátt.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar má áætla að hver ein­stak­lingur sói að með­al­tali um 90 kg af mat árlega. Mat­ar­sóun íslenskra heim­ila er sam­kvæmt þessu sam­bæri­leg því sem þekk­ist í öðrum Evr­ópu­lönd­um, sam­kvæmt stofn­un­inni.

„Með öðrum orðum er áætlað að íslensk heim­ili hendi sam­tals 7.152 tonnum af nýt­an­legum mat á ári hverju, um 9.130 tonnum af ónýt­an­legum mat­ar­af­göng­um, 14.670 tonnum af drykkjum og 1.840 tonnum af mat­ar­olíu og fitu. Sam­bæri­leg rann­sókn var fram­kvæmd af Umhverf­is­stofnun árið 2016 og fannst ekki töl­fræði­lega mark­tækur munur á sóun milli tíma­bil­anna tveggja,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­un­ar.

Auglýsing

Þá bendi nið­ur­stöður fyr­ir­tækja­rann­sókn­ar­innar til að ríf­lega 22 kg af nýt­an­legum mat, 3,6 kg af ónýt­an­legum mat, 14,6 lítrum af drykkjum og 1,6 kg af olíu og fitu sé sóað á hvern íbúa árlega. Dræm þátt­taka fram­leiðslu­fyr­ir­tækja í rann­sókn­inni geri það þó að verkum að nið­ur­stöð­urnar end­ur­spegli ein­ungis neyslu­hlekk mat­væla­keðj­unn­ar, þ.e.a.s. heild- og smá­sölu, veit­inga­sölu og spít­ala og hjúkr­un­ar­heim­ili.

„Vest­ur­lönd veita mat­ar­sóun sífellt meiri athygli, ekki síst vegna umtals­verðrar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Enn sem komið er liggja ekki fyrir staðl­aðar aðferðir við rann­sóknir á mat­ar­só­un, en eitt fram­lag rann­sókn­ar­skýrslu Umhverf­is­stofn­unar var að koma með til­lögur til Hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins að stöðl­uðum aðferðum við rann­sóknir á mat­ar­só­un,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­un­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent