Nærri tíu milljónir hafa sótt um atvinnuleysisbætur í Bandaríkjunum

Um 6,6 milljónir Bandaríkjamanna hafa sótt um atvinnuleysisbætur undanfarna viku, sem er gjörsamlega án fordæma. Í hruninu fyrir röskum áratug fór fjöldinn hæst í 665 þúsund bótaumsóknir á einni viku.

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Auglýsing

Störf tap­ast nú í Banda­ríkj­unum sem aldrei fyrr. Á tveimur vikum hafa nærri því tíu milljón manns sótt um atvinnu­leys­is­bætur þar í landi, þar af yfir 6,6 millj­ónir manna í síð­ustu viku, sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá banda­rísku vinnu­mála­stofn­un­inni sem birtar voru í dag. 

Met hafa því verið slegin hvað þetta varðar tvær vikur í röð, en í frétt New York Times segir að fyrra met hvað varðar fjölda atvinnu­leys­is­um­sókna í Banda­ríkj­unum á einni viku hafi verið frá árinu 1982, þegar um 695 þús­und umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur bár­ust á einni viku.

Þegar alþjóð­lega fjár­málakreppan fyrir röskum ára­tug síðan beit svo hvað harð­ast í upp­hafi árs 2009 sóttu um 665 þús­und manns um atvinnu­leys­is­bætur á einni viku í mars­mán­uði, sam­kvæmt því sem fram kemur í frétt CNN.

Fjöldi bótaum­sókna er tífaldur nú.

Auglýsing

„Það sem ger­ist venju­lega í kreppum á mán­aða- eða árs­fjórð­unga­löngu tíma­bili er nú að eiga sér stað á örfáum vik­um,“ hefur New York Times eftir Michelle Meyer, aðal­hag­fræð­ingi Bank of Amer­ica.

Í frétt blaðs­ins er einnig fjallað um það að lík­lega séu enn fleiri búnir að missa vinn­una en þessar ótrú­legu tölur bera með sér, þar sem víða sé álagið á vinnu­mála­stofn­anir ein­staka ríkja svo mikið að færri kom­ist að en vilji til þess að sækja um bæt­ur, þar sem síma­línur séu upp­teknar og vef­þjónar kikni undan álagi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent