Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.486 hér á landi. Í gær voru þau 1.417 og hefur þeim því fjölgað um 69 á einum sólarhring. Í dag eru 5.511 manns í sóttkví og hefur þeim fjölgað töluvert frá því í gær, er fjöldinn var 5.275. Alls hafa 11.657 manns lokið sóttkví.
Í dag eru 1.054 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær voru þeir 1.017. Alls er 428 manns batnað.
Tæplega sextíu ný smit greindust í þeim 574 sýnum sem tekin voru á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Af 1.080 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfðagreiningu fundust tíu ný smit. Alls hafa 25.394 sýni nú verið tekin hér á landi frá upphafi faraldursins.
Á sjúkrahúsi liggja 42 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af ellefu á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru fjögur látin.
Í spálíkani vísindamanna við Háskóla Íslands sem uppfært var fyrir helgi kemur fram að á meðan faraldurinn gengur yfir er gert ráð fyrir því að rúmlega 1.800 manns á Íslandi verði greind með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð nær 2.500 manns samkvæmt svartsýnni spá.
Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki í fyrstu viku apríl og verði sennilega um 1.200 manns, en gæti viku seinna náð 1.700 manns samkvæmt svartsýnni spá.
Þá er gert ráð fyrir að á meðan að faraldurinn gangi yfir muni 120 manns þarfnast innlagnar á sjúkrahús, en gæti náð hátt í 180 manns.
Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Gert er ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni um 26 einstaklingar veikjast alvarlega, þ.e. þurfa innlögn á gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnni spá er 40 einstaklingar.
Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti orðið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 18 manns.
Smávægileg hliðrun aldursdreifingar í átt að fleiri greindum smitum meðal einstaklinga yfir sextugt myndi auka álag á heilbrigðisþjónustu talsvert.