Embætti ríkislögmanns hefur verið gert skylt að veita ritstjórn Kjarnans aðgang að stefnum nokkurra sjávarútvegsfyrirtækja á hendur íslenska ríkinu þar sem þau fara fram á bætur vegna fjártjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna makrílkvóta sem fór ekki til þeirra. Þetta kemur fram í úrskurði sem úrskurðarnefnd um upplýsingamál kvað upp 1. apríl síðastliðinn.
Um er að ræða Stefnur Gjögurs hf., Ísfélags Vestmannaeyja hf., Skinneyjar-Þinganess hf., Loðnuvinnslunnar hf. og Hugins ehf., sem lagðar voru fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 27. júní 2019, stefnur Eskju hf. og Vinnslustöðvarinnar hf., sem lagðar voru fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 10. september 2019 og Stefnur Eskju hf. og Vinnslustöðvarinnar hf., sem lagðar voru fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 10. desember 2019. Þó skal afmá hluta upplýsinga sem koma fram í tveimur síðastnefndu stefnunum fyrir afhendingu.
Í úrskurði nefndarinnar segir að það sé niðurstaða hennar „að hagsmunir almennings af aðgangi að upplýsingum um málatilbúnað einkaaðila á hendur íslenska ríkinu vegi í þessu tilviki þyngra en hagsmunir þeirra síðarnefndu af því að þær fari leynt.“
Aðgangi hafnað í desember
Í fyrra var makríll færður í kvóta á grundvelli veiðireynslu þar sem aflaheimildir, eða kvótar, voru að mestu færðar til stórútgerða. Makrílkvótinn er talinn vera 65 til 100 milljarða króna virði.
Þrátt fyrir þetta ákváðu nokkur stór sjávarútvegsfyrirtæki að fara í mál við íslenska ríkið vegna fjártjóns sem þau töldu sig hafa orðið fyrir vegna úthlutar á makrílkvóta á árunum 2011 til 2014.
Kjarninn sendi í júní 2019 fyrirspurn á upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar þar sem óskað var eftir því að fá stefnur fyrirtækjanna afhentar auk þess sem beðið var um upplýsingar um hversu háar kröfur þeirra væru.
Erindið var sent til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins sem brást ekki við því í á aðra viku. Þegar viðbrögð komu fólst í þeim að áframsenda erindið á embætti ríkislögmanns.
Hann taldi rétt að bera það undir lögmenn fyrirtækjanna sem um ræddi hvort þeir myndu samþykkja að upplýsingar um málin yrðu veittar og staðfesti í kjölfarið við Kjarnann að fyrirspurnir þess efnis hefðu verið sendar á umrædd fyrirtæki.
Síðan barst ekkert viðbótarsvar í rúma fimm mánuði, eða þar til 20. desember 2019, þegar ríkislögmaður sendi svar þess efnist að hann teldi ekki heimilt að afhenda stefnurnar. Hann hefði óskað eftir afstöðu umræddra fyrirtækja gagnvart því að fjölmiðlar myndu fá stefnurnar með því að beina spurningum til lögmanna þeirra. „Liggur ekki fyrir samþykki stefnenda um að afhenda stefnurnar og verður að skilja afstöðu þeirra í ljósi seinni málsliðar 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og telur embættið því gögnin undanþegin upplýsingarétti.“
Auk þess sagði í svarinu að ríkislögmaður mæti það „óraunhæft að rýmri aðgangur sé fyrir hendi þótt kröfu um afhendingu sé beint að stjórnvaldi ef um sömu gögn er að ræða. Gögnin eru því eðli sínu samkvæmt undanþegin upplýsingarétti.“
Kjarninn kærði synjun ríkislögmanns á aðgengi að umræddum upplýsingum til úrskurðarnefndar um upplýsingamál strax í kjölfarið.
Augljósir almannahagsmunir
Beiðni Kjarnans um aðgang að gögnunum byggði á 5. gr. upplýsingalaga. Í kærunni sagði að augljósir almannahagsmunir væru af því að fjölmiðlar og almenningur fái upplýsingar um það þegar fyrirtæki stefni ríkinu til greiðslu bóta vegna úthlutunar á gæðum sem samkvæmt fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða séu sameign íslensku þjóðarinnar. því geti vart staðist að takmarka upplýsingarétt vegna einkahagsmuna. Bæði sé sú „eign“ sem sé undir sameign þjóðarinnar auk þess sem sá stefndi sé íslenska ríkið, og þar af leiðandi almenningur. Réttur þeirra sem stefna til að halda gögnum sem þeir telja einka- og fjárhagsmálefni sín geti ekki talist æðri rétti almennings til að vita hvað sé undir í málinu.
Til viðbótar liggi fyrir mat formanns stjórnar Landssambands smábátaeigenda þess efnis að krafa umræddra fyrirtækja á ríkið sé um það bil 35 milljarðar króna. Í ljósi þess hversu há upphæð af almannafé sé undir geti ekki staðist að leyna eigendur þeirrar fjárhæðar, almenning í landinu, upplýsingum um málavexti.
Sögðu almenning og fjölmiðla ekki eiga lögvarða hagsmuni
Úrskurðarnefndin sendi bréf til þeirra sjávarútvegsfyrirækja sem stefndu ríkinu í lok janúar síðastliðins og óskaði eftir afstöðu þeirra til afhendingar gagnanna. Í bréfum þeirra sem svöruðu er í öllum tilvikum lagst gegn því að stefnurnar yrðu afhentar.
Þar er sá tónn sleginn að fjölmiðill eða almenningur séu ekki lögvarinn aðili máls þrátt fyrir að hinn stefndi sé íslenska ríkið. Í einu svarbréfinu sagði meðal annars að málið væri „venjulegt einkamál samkvæmt lögum um meðferð einkamála, þótt stefndi sé opinber aðili. Umrædd stefna stafi ekki frá stjórnvaldi og sé ekki þáttur í meðferð stjórnsýslumáls heldur dómsmáls, þó það sé á könnu ríkislögmanns. Kærandi hafi ekki sýnt fram á að hafa neinna sérstakra lögvarinna hagsmuna að gæta í dómsmálinu.“
Þá var því haldið fram að í stefnunum kæmu fram margvíslegar fjárhagslegar og rekstrarlegar upplýsingar um starfsemi fyrirtækjanna, umfram þær sem lesa megi úr ársreikningum frá þeim árum sem fjallað sé um í málinu.
Úrskurðarnefndin hafnaði þessum málatilbúnaði og komst að þeirri niðurstöðu að hagsmunir almennings af aðgangi að upplýsingum um málatilbúnað einkaaðila á hendur íslenska ríkinu vegiþyngra en hagsmunir sjávarútvegsfyrirtækjanna af því að þær fari leynt.
Kjarninn fór fram á það síðdegis á fimmtudag, 2. apríl, við embætti ríkislögmanns, að fá stefnurnar afhentar. Þrátt fyrir ítrekun um liðna helgi þá hafa þær ekki fengist enn.