Líklegt að samdráttur á Íslandi verði meiri en í svörtustu sviðsmynd Seðlabanka

Í fundargerð peningastefnunefndar kemur fram að líklega verði efnahagsamdrátturinn á Íslandi meiri en 4,8 prósent á þessu ári.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Auglýsing

Á auka­fundi pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands, sem fór fram dag­anna 22. og 23. mars, kom fram að lík­legt sé talið að sam­dráttur í íslensku efna­hags­lífi verði meiri en þær sviðs­myndir sem Seðla­bank­inn hefur kynnt opin­ber­lega gefa til kynna. Þetta kemur fram í fund­ar­gerð hennar sem birt var í gær, tveimur vikum eftir að fund­ur­inn fór fram. 

Sviðs­myndir Seðla­bank­ans voru svo kynntar opin­ber­lega 25. mars, eða tveimur dögum eftir að fundi pen­inga­stefnu­nefndar lauk. Sam­kvæmt þeim var reiknað með 2,4 til 4,8 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á árinu 2020. 

Mild­ari sviðs­myndin gerði ráð fyrir 37 pró­sent fækkun ferða­manna á árinu 2020 sem myndi leiða til 14 pró­sent sam­dráttar í heild­ar­út­flutn­ingi í ár. Dekkri sviðs­myndin gerði ráð fyrir 55 pró­sent fækkun ferða­manna sem myndi leiða að sér 21 pró­sent sam­drátt í útflutn­ing­i. 

Sviðs­mynd­irnar gerðu ráð fyrir miklum breyt­ingum á atvinnu­leysi og að það muni að með­al­tali verða á bil­inu 5,7 til 7,0 pró­sent árið 2020. Þá var búið að taka til­lit til þess að þús­undir launa­manna í einka­fyr­ir­tækjum myndu fara á hluta­bætur úr Atvinnu­trygg­inga­leys­is­sjóð­i. 

Auglýsing
Verðbólga mun, sam­kvæmt sviðs­mynd­un­um, drag­ast sam­an. Spá bank­ans í febr­úar gerði ráð fyrir með­al­verð­bólgu á árinu upp á 1,9 pró­sent. Sviðs­mynd­irnar gerðu hins vegar ráð fyrir því að hún verði lægri, eða 1,4 til 1,5 pró­sent. Þar ræður miklu að lægra verð á hrá­vöru alþjóð­lega og sá mikli slaki sem er að skap­ast á Íslandi toga á móti hefð­bundnum verð­bólgu­hvötum eins og geng­is­falli krón­unn­ar. 

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar kemur fram að sviðs­mynd­irnar tvær hafi verið kynntar fyrir nefnd­ar­mönn­um. Fram hefði komið að óvissa um stöðu mála væri veru­leg og erfitt væri spá fyrir um lík­leg­ustu þróun efna­hags­mála. Þó væri ljóst að horfur væru á sam­drætti á þessu ári og miðað við þessar tvær sviðs­myndir gæti orðið á bil­inu 2,4 til 4,8 pró­sent. „Fram kom að vinna við þessar sviðs­myndir héldi áfram og talið var lík­legt að sú vinna leiddi í ljós að sam­drátt­ur­inn yrði meiri en þær sviðs­myndir sem voru kynntar gæfu til kynna. Nefndin horfði einnig til þess að verð­bólgu­horfur á árinu breytt­ust til­tölu­lega lítið þrátt fyrir mikið umrót í efna­hags­mál­u­m.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent