Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.616 hér á landi. Í gær voru þau 1.586 og hefur þeim því fjölgað um þrjátíu á einum sólarhring. Í dag eru 4.195 manns í sóttkví en í gær var fjöldinn 4.407. Alls hafa 13.898 lokið sóttkví.
Í dag eru 977 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 1.021. Alls hafa 633 náð bata.
29 ný smit greindust í því 671 sýni sem tekið var á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Af 1.284 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfðagreiningu fannst aðeins eitt nýtt smit. Alls hafa 30.947 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Enn er yfir helmingur þeirra sem greinist með sýkingu þegar í sóttkví sem sóttvarnalæknir hefur sagt sýna mikilvægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunnar.
Á sjúkrahúsi liggja 39 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af þrettán á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex látin.
Gert er ráð fyrir því að rúmlega 2.100 manns muni greinast með COVID-19 hér á landi í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð 2.600 samkvæmt svartsýnni spá. Þetta kemur fram í forspá vísindamanna Háskóla Íslands, Landspítala og landlæknisembættisins, sem miðast við gögn til og með 5. apríl.
Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúkdóm nái hámarki í þessari viku og að þeir verði um 1.400 talsins. Samkvæmt svartsýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 einstaklingar hafi þá virkan sjúkdóm á sama tíma.
Samkvæmt nýjustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins fer yfir þurfi 140 manns að leggjast inn á sjúkrahús, en fjöldinn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heilbrgiðisþjónustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Uppfærð forspá gerir ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni 28 einstaklingar veikjast alvarlega og þurfa gjörgæsluinnlögn, en svartsýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúklingar verði allt að 41 talsins.
Mestu álagi á gjörgæsludeildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúklingar liggi á gjörgæslu á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 19 manns.