Vel innan við þúsund virk smit – 633 hefur batnað af COVID-19

Tæplega tvö þúsund sýni voru rannsökuð í gær og af þeim reyndust þrjátíu jákvæð. Hjá Íslenskri erfðagreiningu fannst aðeins eitt nýt smit, annan daginn í röð.

Handþvottur
Auglýsing

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.616 hér á landi. Í gær voru þau 1.586 og hefur þeim því fjölgað um þrjá­tíu á einum sól­ar­hring. Í dag eru 4.195 manns í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 4.407. Alls hafa 13.898 lokið sótt­kví.

Í dag eru 977 ein­stak­ling­ar ­með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 1.021. Alls hafa 633 náð bata.

29 ný smit ­greindust í því 671 sýni sem tekið var á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala í gær. Af 1.284 sýnum sem tekin voru hjá Íslenskri erfða­grein­ingu fannst aðeins eitt nýtt smit. Alls hafa 30.947 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Auglýsing

Enn er yfir­ helm­ingur þeirra sem grein­ist með sýk­ingu þegar í sótt­kví sem sótt­varna­lækn­ir hefur sagt sýna mik­il­vægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunn­ar.

Á sjúkra­hús­i liggja 39 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af þrettán á gjör­gæslu, ­sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.­is.

Af þeim sem ­greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sex lát­in.

Gert er ráð ­fyrir því að rúm­lega 2.100 manns muni grein­ast með COVID-19 hér á landi í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð 2.600 sam­kvæmt svart­sýnni spá. Þetta kemur fram í for­spá vís­inda­manna Háskóla Íslands, Land­spít­ala og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mið­ast við gögn til og með 5. apr­íl.

­Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúk­dóm nái hámarki í þess­ari viku og að þeir verði um 1.400 tals­ins. Sam­kvæmt svart­sýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 ein­stak­lingar hafi þá virkan sjúk­dóm á sama tíma.

Sam­kvæmt nýj­ustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins fer ­yfir þurfi 140 manns að leggj­ast inn á sjúkra­hús, en fjöld­inn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heil­brg­iðis­þjón­ustu verður fyrir miðjan apr­íl, en þá er ­gert ráð fyrir að um það bil 70 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama ­tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­ling­ar.

Upp­færð ­for­spá gerir ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni 28 ein­stak­ling­ar veikj­ast alvar­lega og þurfa gjör­gæslu­inn­lögn, en svart­sýnni spá gerir ráð fyr­ir­ því að þessir sjúk­lingar verði allt að 41 tals­ins.

Mestu álag­i á gjör­gæslu­deildir er spáð í annarri viku apr­íl, en þá er búist við því að 11 ­sjúk­lingar liggi á gjör­gæslu á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 19 manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent