Engin ákvörðun verið tekin um að halda Íslandi lokuðu þar til að bóluefni finnst

Ummæli Lilju D. Alfreðsdóttur, um að bóluefni við kórónuveirunni sé forsenda þess að hægt sé að opna Ísland að nýju fyrir ferðamönnum, hafa vakið athygli. Nú hefur ráðherra ferðamála stigið fram og sagt enga ákvörðun hafa verið tekna um málið.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Auglýsing

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ráð­herra ferða­mála, nýsköp­un­ar, iðn­aðar og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það að halda Íslandi lok­uðu þangað til að hægt verður að bólu­setja fólk gegn kór­ónu­veirunn­i. 

Til­efnið er var frétt í Morg­un­blað­inu í morgun þar sem haft var eftir Lilju D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og vara­for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, að það væri afar ósenn­i­­legt að opn­­ast muni fyr­ir flæði fólks til og frá land­inu fyrr en hægt verður að bólu­­setja fólk gegn kór­ón­u­veirunn­i. 

Auglýsing
Í stöðu­upp­færslu á Face­book segir Þór­dís Kol­brún að ummæli Lilju hafi skilj­an­lega vakið upp alvar­legar spurn­ing­ar, ekki síst innan ferða­þjón­ust­unnar þar sem mjög alvar­leg staða væri uppi nú þeg­ar. „Að gefnu til­efni finnst mér mik­il­vægt að það komi fram að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þetta enda yrði slík meiri­háttar stefnu­breyt­ing alltaf kynnt með form­legum og við­eig­andi hætt­i.“

Í Morg­un­blað­inu í dag er haft eftir ráð­herra mennta- og menn­ing­ar­mála að það sé „afar ósenni­legt" að opn­ast muni fyr­ir­...

Posted by Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir on Thurs­day, April 9, 2020


Í við­tal­inu í Morg­un­blað­inu sagði Lilja að um­fangs­­mikl­ar ferða­tak­­mark­an­ir fram að bólu­­setn­ingu gegn kór­ónu­veirunni myndu gera það að verk­um að íslenska hag­­kerfið yrði að hálfu lokað og hálfu opið. 

Sér­fræð­ingar búast ekki við því að bólu­efni verði til­búið fyrr en í fyrsta lagi seint á þessu ári, og jafn­vel ekki fyrr en þá því næsta.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, sagði þó í Kast­ljósi RÚV í síð­ustu viku að hann búist við því að búið verði að finna bólu­efni við kór­ónu­veirunni í lok þessa árs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent