Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.675 hér á landi. Í gær voru þau 1.648 og hefur þeim því fjölgað um 27 á einum sólarhring. Í dag eru 3.678 manns í sóttkví en í gær var fjöldinn 3.940. Alls hafa 14.846 lokið sóttkví.
Í dag eru 918 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 954. Alls hefur 751 náð bata.
26 ný smit greindust í því 561 sýni sem tekið var á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Af 941 sýni sem tekið var hjá Íslenskri erfðagreiningu fannst aðeins eitt nýtt smit. Alls hafa 34.125 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Á sjúkrahúsi liggja 40 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af ellefu á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru sjö látin, en einn sjúklingur lést á Landspítalanum á síðasta sólarhring.
Gert er ráð fyrir því að rúmlega 2.100 manns muni greinast með COVID-19 hér á landi í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð 2.600 samkvæmt svartsýnni spá. Þetta kemur fram í forspá vísindamanna Háskóla Íslands, Landspítala og landlæknisembættisins, sem miðast við gögn til og með 5. apríl.
Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúkdóm nái hámarki í þessari viku og að þeir verði um 1.400 talsins. Samkvæmt svartsýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 einstaklingar hafi þá virkan sjúkdóm á sama tíma. Samkvæmt nýjustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins fer yfir þurfi 140 manns að leggjast inn á sjúkrahús, en fjöldinn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heilbrgiðisþjónustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Uppfærð forspá gerir ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni 28 einstaklingar veikjast alvarlega og þurfa gjörgæsluinnlögn, en svartsýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúklingar verði allt að 41 talsins.
Mestu álagi á gjörgæsludeildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúklingar liggi á gjörgæslu á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 19 manns.