Faraldurinn að mestu tilkominn vegna ferða Íslendinga erlendis

Á meðan tiltölulega fáir hafa sýkst og þar með myndað mótefni þarf að huga að því hvernig hægt er að vernda þann stóra hóp sem enn er móttækilegur. Það er til dæmis hægt með einhvers konar ferðatakmörkunum, segir sóttvarnalæknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Auglýsing

Aðeins níu ný smit af COVID-19 greindust á land­inu síð­asta sól­ar­hring, sjö á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og tvö á Vest­fjörð­um. Þriðj­ungur þeirra sem greind­ist var þegar í sótt­kví.

Fyrsta til­felli nýju kór­ónu­veirunnar var stað­fest hér á landi þann 28. febr­ú­ar. Síð­an þá hafa 1.720 manns greinst með veiruna, „og við höfum því miður misst átta ­sjúk­linga,“ sagði Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag þar sem farið var yfir áform um aflétt­ingu á sam­komu­tak­mörk­unum vegna far­ald­urs­ins.

Hingað til­ hafa rétt yfir 100 manns verið lagðir inn á sjúkra­hús vegna COVID-19, þar af ­þrjá­tíu á gjör­gæslu. Af þeim hafa 26 þurft á með­ferð í önd­un­ar­vél að halda.

Auglýsing

Þórólf­ur ­segir að hápunkti far­ald­urs­ins hafi verið náð fyrir um viku og að nú sé far­ið að draga úr álagi á heil­brigð­is­kerf­ið. Átta manns liggja núna á gjör­gæslu­deild­um. ­Þrír þeirra eru í önd­un­ar­vél á Land­spít­al­anum en eng­inn er í önd­un­ar­vél á Sjúkra­hús­inu á Akur­eyri.

Far­ald­ur­inn hefur að sögn Þór­ólfs verið á nið­ur­leið síð­ustu daga sem þakka megi þeim miklu ­sam­fé­lags­legu aðgerðum sem verið hafa í gangi hér á landi og þeim sam­taka­mætt­i ­sem finna má í öllu sam­fé­lag­inu; meðal almenn­ings, fyr­ir­tækja, félaga­sam­taka og ­stjórn­valda.

Álag á sjúkra­hús lands­ins hefur verið mikið að sögn Þór­ólfs og að það megi auð­veld­lega í­mynda sér hvað þar hefði gerst ef far­ald­ur­inn hefði verið meiri en raun­in varð. Ítrekar hann hversu mik­il­vægt það er að halda far­aldr­inum niðri „eins og ­mögu­legt er“ til að vernda heil­brigð­is­starf­sem­ina.

Verður að stíga skref hægt og bít­andi

Reynt verð­ur á næst­unni að aflétta þeim tak­mörk­unum sem settar hafa verið á dag­legt líf ­fólks. „Það er mjög mik­il­vægt að aflétta þeim og að gera það hægt og bít­and­i svo að fáum ekki far­aldur aftur og þurfum að stíga skref til bak­a,“ seg­ir Þórólf­ur. Stór hópur í sam­fé­lag­inu er enn mót­tæki­legur fyrr veirunni.

Segir hann ýmsar hug­myndir í gangi um hvernig hægt sé að tak­marka með ein­hverjum hætt­i ­ferðir ferða­manna hingað til lands og ferða­lög Íslend­inga jafn­vel líka. Bendir hann á að far­ald­ur­inn hér sé að mestu til­kom­inn vegna ferða Íslend­inga erlendis en ekki ­ferða­manna sem hingað hafa kom­ið.

Sam­taka­mátt­ur­inn ein­stakur

Þórólf­ur hvetur allan almenn­ing til að halda sam­stöð­unni áfram. „Hún er alveg ein­stök. ­Sam­taka­máttur okkar og almenn­ings verður lyk­ill­inn að því að við getum stað­ið ­upp og hrósað sigri á þess­ari veiru­sýk­ing­u.“

Á fund­in­um var Þórólfur spurður hvort að hætt yrði við að aflétta tak­mörk­unum ef smit­u­m ­færi aftur að fjölga. Hann svar­aði því til að yfir­völd væru til­búin til að takast á við hóp­sýk­ingar sem gætu komið upp á ákveðnum svæð­um. Ef að mik­il út­breiðsla á lands­vísu kæmi upp aftur þá gæti þurft að grípa til harðra aðgerða á ný.

Á með­an til­tölu­lega fáir hafi sýkst og þar með myndað mótefni þyrfti að huga að því hvernig hægt er að vernda þann stóra hóp sem enn er mót­tæki­leg­ur. Það væri hægt ­með ein­hvers konar ferða­tak­mörk­unum en allar aðgerðir mið­ast við að vinna sér­ ­tíma þar til með­ferð við veiru­sýk­ing­unni finn­st, veiran deyr út í heim­in­um (eins og gerð­ist með SARS á einu ári) eða að bólu­efni finnst. „Við höfum verk að vinna en verðum að eiga við þetta eftir því sem far­ald­ur­inn verður hér og er­lend­is.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent