Ferðatakmarkanir í gildi hér til 15. maí

Íslensk stjórnvöld munu staðfesta framlengingu á ferðatakmörkunum sem eru í gildi á ytri landamærum aðildarríkja Schengen. Takmarkanirnar verða því í gildi til 15. maí.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Áslaug Arna ­Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sagði á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu í dag að enn væru ekki komnar fram neinar til­lögur um aukn­ar ­ferða­tak­mark­anir hér á landi en að ýmsir þættir væru í skoð­un. „Auð­vitað velt­ur þetta ekki aðeins á okkur heldur á sam­starfi ann­arra ríkja og við­brögð­u­m ann­arra ríkja.“

Hins veg­ar ­myndu stjórn­völd, að til­lögu fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, fram­lengja ­ferða­tak­mark­anir sem gilda á ytri landa­mærum aðild­ar­ríkja Schengen. Enn væru svo ýmis lönd með tak­mark­anir á sínum innri landa­mær­um.  „Í morgun barst orð­send­ing frá­ fram­kvæmda­stjórn ESB þar sem er lagt til að aðild­ar­ríkin fram­lengi ferða­tak­mark­an­irn­ar til og með 15. maí næst­kom­andi. Ríki eru þegar farin að stað­festa slík­a fram­leng­ingu og Ísland mun gera slíkt hið sama í þess­ari viku.“

Auglýsing

Hún sagði að á­kvarð­anir okkar væru háðar ýmsu, m.a. fram­boði og eft­ir­spurn ann­arra ríkja á tak­mörk­unum á þeirra landa­mær­um. Leitað væri upp­lýs­inga hjá öðrum löndum vegna þessa.

Áslaug sagð­i að almanna­varna­kerf­ið, sem er sam­starf margra aðila, hafi skilað mjög miklu­m ár­angri. „En við erum enn á neyð­ar­stigi almanna­varna og við munum vera þar á­fram á meðan ein­hverjar tak­mark­anir eru í gild­i.“

­Dóms­mála­ráð­herra ­sagði að aflétt­ing á ýmsum tak­mörk­unum sem  nú hafa verið kynntar muni hafa jákvæð áhrif á þús­undir manna. „Það verður ánægju­legt að sjá skóla­starf fara í gang með eðli­legum hætti sem og ­fyr­ir­tæki að eiga auð­veld­ara með að starfa með hefð­bundn­ara snið­i.“

Áslaug sagð­i að aðgerð­irnar hefðu haft þau jákvæðu áhrif að draga úr smitum en að nei­kvæð­u á­hrifin væru einnig til stað­ar. „Við höfum fyrst og fremst verið að fást við þetta sem heil­brigð­isvá og höfum tek­ist á við verk­efnið undir þeim for­merkj­u­m og frum­hlut­verk okkar í þessu, almanna­varna og allra, er að vernda líf og heilsu fólks.“

Sagði hún­ Ís­lend­inga ekki hafa látið ótt­ann ná yfir­hönd­inni og að „hvernig við bregð­um­st við mót­læti segir mikið um okkur sjálf“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent