Sjö ný smit á einum sólarhring

Tæplega 1.080 manns hafa náð bata af COVID-19 hér á landi. Enn fækkar mjög þeim sem eru í sóttkví.

sólarlag
Auglýsing

Stað­fest smit af kór­ónu­veirunni eru orðin 1.727 hér á landi. Í gær voru þau 1.720 og hefur þeim því aðeins fjölgað um sjö síð­asta sól­ar­hring­inn. Í dag er 2.101 í sótt­kví en í gær var fjöld­inn 2.503. Alls hafa 16.726 lokið sótt­kví.

Í dag eru 642 ein­stak­lingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöld­inn 723. Elsti sjúk­ling­ur­inn er 103 ára gömul kona, íbúi á öldr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík.

1.077 hafa náð bata.

Auglýsing

Alls hafa 37.386 sýni verið tekið hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Þegar gefnar eru út upp­lýs­ingar um hve smit­uðum hefur fjölgað mikið frá deg­inum áður er það ekki alltaf svo að sam­bæri­leg tala birt­ist í súlu­riti dags­ins. Ástæðan er sú að birt­ing upp­lýs­inga um smit taka mið af því hvenær sýnið var tekið en ekki hvenær það var greint.

Enn er yfir helm­ingur þeirra sem grein­ist með sýk­ingu þegar í sótt­kví sem sótt­varna­læknir hefur sagt sýna mik­il­vægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunn­ar.

Á sjúkra­húsi liggja 36 sjúk­lingar vegna COVID-19 sjúk­dóms­ins, þar af átta á gjör­gæslu, ­sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.­is.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta lát­in.

Upp­færð spá

Í spálík­ani sér­fræð­inga Háskóla Íslands, sem upp­fært var í gær með gögnum til og með 13. apríl er gert er ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins gangi yfir muni rúm­lega 1.700 manns á Íslandi vera greind með COVID-19, en talan gæti náð nær 2.100 manns sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Gert er ráð fyrir að fjöldi greindra ein­stak­linga með virkan sjúk­dóm haf þegar náð hámarki en gæti orðið viku seinna sam­kvæmt svart­sýnni spá.

Þá er gert ráð fyrir að á meðan að þessi bylgja far­ald­urs­ins gangi yfir muni 110 manns þarfn­ast inn­lagnar á sjúkra­húsi, en gæti náð hátt í 150 manns.

Mesta álag á heil­brigð­is­þjón­ustu vegna sjúkra­húsinn­lagna verður fyrir miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um það bil 60 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­ling­ar.

Gert er ráð fyrir því að á tíma far­ald­urs­ins muni um 24 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega, þ.e. þurfa inn­lögn á gjör­gæslu, á tíma­bil­inu en svart­sýnni spá er 35 ein­stak­ling­ar.

Mesta álag á gjör­gæslu­deildir gæti orðið í annarri viku apr­íl, en þá er búist við því að 10 manns liggi þar inni á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 18 manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent