Tekjutengdar afborganir námslána lækka að meðaltali um 25 þúsund

Stjórnvöld kynntu í dag breytingar á námslánakerfinu, sem hafa verið í ferli frá því að lífskjarasamningarnir voru undirritaðir á almenna vinnumarkaðnum síðasta vor. Greiðendur námslána munu helst finna fyrir því að tekjutengd afborgun lækkar.

haskoli-islands_13944889198_o.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd kynntu í dag breyt­ingar á náms­lána­kerf­inu, sem hafa verið í ferli frá því að lífs­kjara­samn­ing­arnir voru und­ir­rit­aðir á almenna vinnu­mark­aðnum síð­asta vor. Þær breyt­ingar sem greið­endur náms­lána munu helst finna fyrir eru þær að tekju­tengd afborgun lán­anna lækkar er verð­tryggðir vextir náms­lána lækka úr 1 pró­senti niður í 0,4 pró­sent. 

Tvö dæmi eru tek­in, í mynd­bandskynn­ingu stjórn­valda, um hvernig lækkun vaxta og end­ur­greiðslu­hlut­falls lána mun hafa áhrif á afborg­anir náms­lána að hausti. Þannig mun barn­laus ein­stak­lingur með 700 þús­und krónur í mán­að­ar­laun greiða 25.000 krónum minna af láni sínu í sept­em­ber og afborg­anir hjóna með 1,4 millj­ónir í sam­an­lögð mán­að­ar­laun munu lækka um 50 þús­und krónur sam­an­lagt.

Ábyrgð­ar­menn á um 30 þús­und náms­lán­um, sem tekin voru fyrir árið 2009 og eru í skil­um, verða einnig felldir brott. Þetta er gert til að tryggja jafn­ræði við þá sem tóku lán eftir þann tíma.



Þá verður upp­greiðslu­af­sláttur hækk­aður upp í allt að 15 pró­sent, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Auglýsing



Núvirtur kostn­aður þess­ara aðgerða er met­inn um 14 millj­arðar króna, af starfs­hópi sem skip­aður var til þess að end­ur­skoða reglur um end­ur­greiðslu náms­lána. „Hann fellur til yfir lengri tíma og unnt er að láta greið­endur náms­lána njóta góðs af sterkri fjár­hags­stöðu Lána­sjóðs­ins sem fjár­magnar aðgerð­irn­ar,“ segir um kostn­að­inn í til­kynn­ingu stjórn­valda. 

Háskóla­menn fagna

Banda­lag háskóla­manna seg­ist fagna boð­uðum aðgerðum rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Þær munu koma tug­þús­undum Íslend­inga til góða, bæði félags­mönnum aðild­ar­fé­laga BHM sem og öðrum sem greiða af náms­lán­um,“ segir í til­kynn­ingu frá BHM.

„BHM hefur árum saman barist fyrir því að dregið verði úr end­ur­greiðslu­byrði náms­lána og að ábyrgða­manna­kerfið verði afnumið að fullu. Með þeim breyt­ingum sem rík­is­stjórnin hefur nú boðað eru þessi bar­áttu­mál loks­ins í höfn. Kafla­skil hafa orðið í hags­muna- og rétt­inda­bar­áttu BHM fyrir félags­menn,“ segir enn fremur í til­kynn­ingu félags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent