Telur mikilvægt að reglur nái til ferðamanna

Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að einhverskonar reglur um sóttkví nái einnig til ferðamanna sem koma hingað til lands, en starfshópur mun skila af sér tillögum um hvaða reglur skuli gilda um erlenda ferðamenn öðru hvoru megin við helgina.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á fundinum í dag.
Auglýsing

Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir telur brýnt að ein­hvers­konar reglur um sótt­kví nái einnig yfir ferða­menn sem hingað koma, til þess að ný smit ber­ist ekki inn í land­ið. Eins og staðan er í dag eru engar slíkar reglur gild­andi, en reyndar eru nær engir ferða­menn að koma til lands­ins.

„Ég tel mik­il­vægt að ein­hvers­konar hömlur muni gilda líka um þá til þess að tryggja að við fáum ekki smit hingað til Íslands,“ sagði Þórólf­ur, á dag­legum upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Í kjöl­farið benti hann á að all­víða er ferða­mönnum nú gert skylt að fara í sótt­kví, til dæmis í Dan­mörku.

Eins og áður hefur komið fram er starfs­hópur að skoða hvernig þetta atriði verður útfært á Íslandi og sagði Þórólfur að til­lögur hóps­ins myndu liggja fyrir núna „öðru hvoru megin við helg­ina.“ Í kjöl­farið mun sótt­varna­læknir senda heil­brigð­is­ráð­herra minn­is­blað með til­lögu að útfærslu.

Auglýsing

Hafa auga á komu Nor­rænu 

Sam­kvæmt regl­unum eins og þær eru hér á landi í dag geta ferða­menn komið til Íslands án þess að fara í sótt­kví, á meðan að þeir sem búa á Íslandi þurfa að fara í sótt­kví er þeir koma erlendis frá. Reyndar reynir lítið á það, þar sem nær engir ferða­menn eru að koma.

Það gæti þó breyst innan skamms, en fram kom í máli Þór­ólfs á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að far­þega­ferjan Nor­ræna kæmi mögu­lega með ein­hverja ferða­menn til Seyð­is­fjarðar í næstu viku og yfir­völd væru að fylgj­ast með því. Óljóst væri þó hversu margir ferða­menn kæmu með ferj­unni.

Á vef Aust­ur­fréttar segir að búist sé við ríf­lega tutt­ugu far­þegum með skip­inu í næstu ferð, en fær­eyska skipa­fé­lagið Smyril Line hefur ákveðið að taka aftur upp far­þeg­a­sigl­ingar eftir að hafa ein­ungis flutt frakt und­an­far­inn mán­uð.

Sótt­varna­læknir sagði að það væri mik­il­vægt að alþjóða­sam­fé­lagið myndi í sam­ein­ingu leita lausna á því hvernig ferða­mennsku yrði háttað á næstu vikum og mán­uð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent