Einn sjúklingur lét lífið á Landspítala af völdum COVID-19 á síðasta sólarhring, samkvæmt tilkynningu á vef spítalans. Níu manns hafa nú látist hér á landi eftir að hafa smitast af COVID-19 sjúkdómnum.
Í tilkynningu vottar spítalinn aðstandendum hins látna samúð sína.
Samkvæmt opinberum tölum hafa 1.739 manns nú smitast af COVID-19 hér á landi, en vel yfir þúsund manns er batnað og innan við 600 manns eru með virk smit.
Auglýsing
Samkvæmt tölunum, sem síðast voru uppfærðar í gær, voru 35 manns á spítala og þar af sex á gjörgæsludeild.