Festi frestar því að greiða arð

Smásölurisinn sem rekur meðal annars N1 og Krónuna hefur ákveðið að fresta greiðslu á 657 milljóna króna arðgreiðslu.

Eggert Þór Kristófersson er forstjóri Festi.
Eggert Þór Kristófersson er forstjóri Festi.
Auglýsing

Stjórn Festi, sem rekur N1, Krón­una, Elko og Bakk­ann vöru­hót­­el, hefur ákveðið að fresta 657 milljón króna arð­greiðslu sem til stóð að greiða hlut­höfum félags­ins vegna frammi­stöðu síð­asta árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu til Kaup­hallar Íslands.

Festi hagn­að­ist um 2,8 millj­arða króna á árinu 2019. Um síð­ustu ára­mót var eigið fé sam­­stæð­unn­­ar  28,7 millj­arðar króna og eig­in­fjár­­hlut­­fallið 35,3 pró­sent.

Á aðal­fundi Festi sem fór fram mánu­dag­inn 23. mars 2020 hafði verið tekin ákvörðun um greiðslu arðs vegna rekstr­ar­árs­ins 2019. Sam­hliða var bókað að greiða ætti út arð­inn 20. apríl 2020, eða í dag. 

Stjórn Festis var hins vegar veitt heim­ild til að meta og taka ákvörðun um hvort rétt sé að fresta greiðslu arðs­ins eða fella hana nið­ur, með hlið­sjón af sjóðs­stöðu og aðstæðum í rekstri sam­stæðu félags­ins, til allt að 23. sept­em­ber 2020.

Auglýsing
Í til­kynn­ing­unni sem send var út í dag segir að í sam­ræmi við ákvörðun aðal­fundar hagi stjórn Festi tekið ákvörðun um að fresta ákvörðun um greiðslu arðs vegna rekstr­ar­árs­ins 2019.“

Stærstu eig­endur Festi eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Arion banki líka hættur við arð­greiðslur

Annað skráð félag, Arion banki, greindi frá því fyrir helgi að hald­inn yrði fram­halds­að­al­fundur hjá bank­anum í maí til að taka ákvörðun um að hætta við að greiðslu arðs vegna síð­asta árs. 

Arion banki hagn­að­ist um 1,1 millj­­­arð króna í fyrra og arð­­­semi eigin fjár bank­ans var 0,6 pró­­­sent. Til stóð að greiða tíu millj­­­arða króna arð­greiðslu til hlut­hafa vegna síð­­­asta árs. Það stóð því til að greiða út nífaldan hagnað í arð. Þau áform eru í takti við yfir­­­lýsta stefnu bank­ans, sem er að öllu leyti í einka­eigu og skráður á hluta­bréfa­­­mark­að, að greiða út tugi millj­­­arða króna eigin fé hans til eig­enda hans. 

Frá því að upp­­­haf­­­leg ákvörðun um þá end­­­ur­greiðslu var tekin hefur staðan í efna­hags­líf­inu gjör­breyst og mikið hafði verið þrýst á Arion banka að falla frá arð­greið­s­unni, sér­stak­lega eftir að greint var frá því að sveiflu­­­jöfn­un­­­ar­auk­i, sem á að auð­velda banka­­­­kerf­inu að styðja við heim­il­i og fyr­ir­tæki með því að skapa svig­­­­rúm til nýrra útlána sem nemur að öðru óbreyttu allt að 350 millj­­­­örðum króna, hefði verið afnumin 18. mars síð­­­ast­lið­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent