Vinnumálstofnun fær allt að 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til reksturs stofnunarinnar vegna aukinna verkefna í tengslum við COVID-19. Þetta kynnti Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í ríkisstjórn í dag sem hluta af aðgerðarpakka stjórnvalda vegna COVID-19.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Fram kemur í tilkynningunni að fjárveitingin verði nýtt til að ráða 35 einstaklinga til starfa, tímabundið til sex mánaða, en mikil þörf sé fyrir aukinn mannafla hjá stofnuninni. Þá verði ýmis stoðþjónusta efld, svo sem tölvuþjónusta og upplýsingagjöf um ýmsa tölfræði, auk þess sem mikilvægt sé að vinna spár um ástand og horfur á vinnumarkaði til framtíðar litið. Vinnumálastofnun muni leggja upp með að ráða sem flesta til þessara starfa úr hópi skráðra atvinnuleitenda hjá stofnuninni.
50.000 einstaklingar fá greiddar atvinnuleysisbætur í lok apríl
Vinnumálastofnun hafa borist samtals um 33.800 umsóknir um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli síðan opnað var fyrir umsóknir um úrræðið þann 25. mars síðastliðinn, að því er fram kemur í tilkynningu félagsmálaráðuneytisins.
Það sem af er apríl hafi stofnuninni jafnframt borist um 2.200 umsóknir frá einstaklingum sem eru að fullu skráðir án atvinnu sem sé viðbót við þá 14.200 einstaklinga sem þegar hafi að fullu verið skráðir án atvinnu í lok mars 2020. Miðað við núverendi forsendur muni því um 50.000 einstaklingar fá greiddar atvinnuleysisbætur að fullu eða að hluta á móti skertu starfshlutfalli í lok apríl.
Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, segir við tilefnið að COVID-19 faraldurinn hafi haft mjög mikil áhrif á vinnumarkaðinn. „Heilu atvinnugreinarnar eru lamaðar og ljóst er að sá fjöldi fólks sem mun þurfa að nýta sér þjónustu Vinnumálastofnunar er án fordæma. Þetta hefur haft í för með sér gríðarlegt álag á stofnunina og þvi nauðsynlegt að styrkja frekar þjónustu hennar. Í öllum okkar aðgerðum er það fyrst og fremst skylda okkar að tryggja stöðu heimilanna og framfærslu fjölskyldna í landinu og það ætlum við að gera.”