Ný sviðsmynd sýnir 13 prósent samdrátt á Íslandi í ár

Viðskiptaráð telur að forsendur sem það gefur sér til að reikna með næstum 13 prósent samdrætti í ár skili sviðsmynd sem sé „afar dökk en raunsæ“.

Hrun í komu ferðamanna til Íslands er ráðandi þáttur í þeim samdrætti sem Ísland mun upplifa á árinu 2020.
Hrun í komu ferðamanna til Íslands er ráðandi þáttur í þeim samdrætti sem Ísland mun upplifa á árinu 2020.
Auglýsing

Í nýju haglík­ani sem Við­skipta­ráð Íslands hefur sett fram um þróun lands­fram­leiðslu til árs­ins 2030 er gert ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á árinu 2020 verði 12,8 pró­sent. Það sam­svarar því að hún lækki um 379 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári. For­sendur lík­ans­ins eru meðal ann­ars þær að atvinnu­vega­fjár­fest­ing drag­ist saman um 40 pró­sent, að þjón­ustu­út­flutn­ing­ur, sem felur meðal ann­ars í sér ferða­þjón­ustu, minnki um 59 pró­sent og að íbúða­fjár­fest­ing drag­ist saman um 25 pró­sent. Við­skipta­ráð telur upp­hafs­sviðs­mynd­ina sem dregin er upp þegar farið er inn í líkanið sé „afar dökk en raun­sæ“.

Auglýsing
Sú lands­fram­leiðsla á mann sem Ísland var með í fyrra, 8,2 millj­ónir króna, verður aftur náð árið 2028 miðað við sviðs­mynd­ina og mann­fjölda­spá Hag­stofu Íslands. Upp­safnað tap lands­fram­leiðslu frá árinu 2019 er 1.120 millj­arðar króna sem sem nemur rekstri Land­spít­al­ans í 16 ár og öllum launum og tengdum gjöldum á Íslandi í átta mán­uði.Skjáskot úr Grid sem birt var með umfjöllun á vef Viðskiptaráðs. 

Í umfjöllun Við­skipta­ráðs segir að efna­hags­á­fallið sem nú dynji yfir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum sé óvið­jafn­an­legt. „Að mati flestra liggur fyrir að kreppan verði sú dýpsta í ára­tugi og jafn­vel ald­ir, en hversu djúp og lang­vinn er afar óljóst. Þró­unin er þess eðlis að sögu­leg gögn og haglíkön fanga illa slíkan atburð. Engu að síður skiptir máli að hafa sem skýrasta mynd af þró­un­inni og þar gegnir þróun lands­fram­leiðslu (VLF) lyk­il­hlut­verki enda hefur hún afger­andi áhrif á atvinnustig, kaup­mátt, tekjur rík­is­sjóðs og margt, margt fleira. Segja má að lands­fram­leiðsla setji verð­miða á virði allrar vöru og þjón­ustu sem fram­leidd er á Ísland­i.“

Hægt er að upp­færa haglíkan­ið, sem sett er upp í Grid hug­bún­að­in­um. með því að ­setja inn eigin for­send­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent