Hlutabótaleiðin verður framlengd með óbreyttu sniði út júní, en hún átti að gilda til 1. júní. Eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarksgreiðslur úr opinberum sjóðum verða þá 50 prósent af greiddum launum í stað 75 prósent – og nánari skilyrðum út ágúst.
Þá verður fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja. Auk þess verða settar verða einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja sem miða að því þau geti komist í skjól með einföldum hætti.
Frá þessu greindi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag.
Þrjár aðgerðir
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að þessar þrjár tillögur hafi verið samþykktar í morgun á ríkisstjórnarfundi og að markmið þeirra sé að draga úr þeim skaða sem umfangsmiklar uppsagnir og fjöldagjaldþrot valda.
Þá verða settar tímabundið einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. „Byggt verður á núgildandi grunnreglum en breytingar miða að því að fyrirtæki geti komist í skjól á einfaldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um framtíðarhorfur. Breytingar lúta m.a. að skilyrðum fjárhagslegrar endurskipulagningar, beiðni og umfjöllun um hana, tímafrestum, heimildum til ráðstafana og riftunar- og vanefndaheimildum viðsemjenda.“
Að lokum verður fyrirtækjum gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Stuðningurinn verður í formi greiðslu að hámarki 633 þúsund krónur á mánuði í allt að þrjá mánuði auk orlofs og einskorðast við fyrirtæki sem orðið hafa fyrir að lágmarki 75 prósent tekjufalli og sjá fram á áframhaldandi tekjufall að minnsta kosti út þetta ár. Stjórnvöld áætla að um fjórðungur fyrirtækja hafi orðið fyrir slíku tekjutapi. Hámarkshlutfall stuðnings ríkisins verður 85 prósent. í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að starfsmenn skuli eiga forgang til starfs þegar starfsemi hefst að nýju og halda tilteknum áunnum réttindum. „Sett verði nánari skilyrði, til að mynda um rekstrarhæfi fyrirtækis, fyrir aðild að þessu úrræði og um endurkröfurétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. september.“