Styrkir verða veittir til að greiða laun á uppsagnarfresti og hlutabótaleiðin framlengd

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lengja gildistíma hlutabótaleiðina og reglur um fjárhagslega endurskipulagningu verða einfaldaðar.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Hluta­bóta­leiðin verður fram­lengd með óbreyttu sniði út júní, en hún átti að gilda til 1. júní. Eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarks­greiðslur úr opin­berum sjóðum verða þá 50 pró­sent af greiddum launum í stað 75 pró­sent – og nán­ari skil­yrðum út ágúst. 

Þá verður fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir umfangs­miklu tekju­tapi gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti til að tryggja rétt­indi launa­fólks og koma í veg fyrir fjölda­gjald­þrot fyr­ir­tækja. Auk þess verða settar verða ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja sem miða að því þau geti kom­ist í skjól með ein­földum hætti.

Frá þessu greindi Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag.

Þrjár aðgerðir

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins kemur fram að þessar þrjár til­lögur hafi verið sam­þykktar í morgun á rík­is­stjórn­ar­fundi og að mark­mið þeirra sé að draga úr þeim skaða sem umfangs­miklar upp­sagnir og fjölda­gjald­þrot valda.

Auglýsing
Hlutabótaleið verður fram­lengd án breyt­inga með 25 pró­sent lág­marks­starfs­hlut­falli út júní en lág­markið hækkar í 50 pró­sent í júlí. Leiðin verður í boði til 31. ágúst. Sækja þarf um fram­leng­ingu leið­ar­innar og skil­yrði fyrir þátt­töku verða end­ur­skoð­uð. Um 35 þús­und manns eru að nýta sér hluta­bóta­leið­ina í dag.

Þá verða sett­ar ­tíma­bundið ein­fald­ari reglur um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu fyr­ir­tækja. „Byggt verður á núgild­andi grunn­reglum en breyt­ingar miða að því að fyr­ir­tæki geti kom­ist í skjól á ein­faldan hátt á meðan verið er að meta stöðu þeirra og uns meiri vissa fæst um fram­tíð­ar­horf­ur. Breyt­ingar lúta m.a. að skil­yrðum fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ing­ar, beiðni og umfjöllun um hana, tíma­frest­um, heim­ildum til ráð­staf­ana og rift­un­ar- og van­efnda­heim­ildum við­semj­enda.“

Að lokum verður fyr­ir­tækjum gef­inn kostur á að sækja um stuðn­ing úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostn­aðar á upp­sagn­ar­fresti. Stuðn­ing­ur­inn verður í formi greiðslu að hámarki 633 þús­und krónur á mán­uði í allt að þrjá mán­uði auk orlofs og ein­skorð­ast við fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir að lág­marki 75 pró­sent tekju­falli og sjá fram á áfram­hald­andi tekju­fall að minnsta kosti út þetta ár. Stjórn­völd áætla að um fjórð­ungur fyr­ir­tækja hafi orðið fyrir slíku tekju­tapi. Hámarks­hlut­fall stuðn­ings rík­is­ins verður 85 pró­sent. í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að starfs­menn skuli eiga for­gang til starfs þegar starf­semi hefst að nýju og halda til­teknum áunnum rétt­ind­um. „Sett verði nán­ari skil­yrði, til að mynda um rekstr­ar­hæfi fyr­ir­tæk­is, fyrir aðild að þessu úrræði og um end­ur­kröfu­rétt. Leiðin er í boði frá 1. maí til 30. sept­em­ber.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent