30 manns sagt upp í Fríhöfninni og hundrað manns boðið lægra starfshlutfall

Tekjur Fríhafnarinnar hafa dregist saman um 98 prósent vegna faraldursins. 130 af alls 169 starfsmönnum hefur verið sagt upp eða boðið lægra starfshlutfall.

Nær engir ferðamenn koma lengur til landsins.
Nær engir ferðamenn koma lengur til landsins.
Auglýsing

Frí­höfn­in, sem er dótt­ur­fé­lag Isa­via sem rekur versl­un­ar­starf­semi á Kefla­vík­ur­flug­velli, hefur sagt upp 30 af 169 starfs­mönn­um. Auk þess var 100 til við­bótar boðið áfram­hald­andi starf en í lægra starfs­hlut­falli.

Þá verða engar sum­ar­ráðn­ingar í fram­línu­störfum hjá Isa­via í ár vegna áhrifa COVID-19 far­ald­urs­ins. Þær ráð­staf­anir koma Það kemur til við­bótar við að í lok mars var 101 starfs­manni félags­ins sagt upp störfum vegna áhrifa kór­ónu­veirunnar og 37 til við­bótar boðið áfram­hald­andi starf í lægra starfs­hlut­falli. Áður en áhrifa COVID-19 fór að gæta var áformað að ráða 140 manns í sum­ar­afleys­ingar hjá Isa­vi­a. 

Auglýsing
Í frétta­til­kynn­ingu frá Isa­via vegna þessa segir að ekki séu fyr­ir­hug­aðar frek­ari aðgerðir hjá móð­ur­fé­lagi Isa­via og dótt­ur­fé­lög­unum Isa­via ANS og Isa­via Inn­an­lands að svo stöddu.

Þar er haft eft­ir Þor­gerði Þrá­ins­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Frí­hafn­ar­inn­ar, að tekjur félags­ins hafi dreg­ist saman um 98 pró­sent. „Frá upp­hafi far­ald­urs­ins hefur verið lögð  áhersla á  að verja störf eins og hægt er. Um síð­ustu mán­aða­mót var tekin sú ákvörðun að segja ekki upp föstu starfs­fólki en ráða ekki í sum­ar­störf hjá Frí­höfn­inni. Málin hafa hins vegar þró­ast þannig að nú er útlit fyrir að flug­um­ferð muni verða afar tak­mörkuð næstu mán­uði og tíma­bilið þar sem áhrifa Covid 19 gætir verði lengra en von­ast var til.“

Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isa­via, segir á sama stað að Isa­via sé í þeirri stöðu fjár­hags­lega að geta enn sem komið er leyft sér að horfa til hausts­ins en ekki ein­ungis til næstu vikna eða örfárra mán­aða. Óvissan um fram­haldið í flug­tengdum rekstri sé þó enn afar mikil og ekki sé hægt að úti­loka að það þurfi að grípa til frek­ari aðgerða síð­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent