Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að hafa eftirlit með framkvæmd veitingar viðbótarlána lánastofnana með ríkisábyrgð. Í nefndinni eiga sæti þau Einar Páll Tamimi, sem er formaður, Kristrún Heimisdóttir og Ásta Dís Óladóttir.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins í dag.
Samkvæmt tilkynningunni er eftirlitsnefndinni ætlað að hafa almennt eftirlit með framkvæmd lánveitinganna til fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Nefndin skuli skila fjármála- og efnahagsráðherra skýrslu um framkvæmdina á sex mánaða fresti, í fyrsta sinn fyrir 1. nóvember 2020. Jafnframt skuli hún upplýsa ráðherra án tafar ef hún verður vör við brotalamir í framkvæmdinni.
Í skipunarbréfi kemur fram að sömu nefnd verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd stuðningslána ef Alþingi samþykkir fyrirliggjandi tillögu þess efnis í frumvarpi til laga um fjárstuðning til minni rekstraraðila vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.