Finnur hættir hjá Högum og Guðmundur yfirgefur Bónus

Tveir helstu lykilstjórnendur smásölurisans Haga hafa ákveðið að hætta störfum hjá félaginu. Þeir hafa báðir starfað þar frá því á síðustu öld.

Bónus er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni og stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Bónus er krúnudjásnið í Hagasamstæðunni og stærsta dagvöruverslunarkeðja landsins.
Auglýsing

Finnur Árna­son, sem hefur verið for­stjóri smá­söluris­ans Haga frá árinu 2005, hefur óskað eftir því að láta af störf­um. Þá hefur Guð­mundur Mart­eins­son, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri Bónus sem er í eigu Haga, einnig óskað eftir því að hætta. Þeir tveir hafa verið lyk­il­menn í þeim mikla vexti sem Hagar hafa gengið í gegnum á þess­ari öld og hófu báðir störf þar fyrir ald­ar­mót. 

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands kemur fram að þeir muni báðir starfa áfram þar til að eft­ir­menn þeirra verða ráðn­ir. 

Auglýsing
Finnur segir þar að hann telji rétt á þessum tíma­punkti fyrir sig per­sónu­lega að staldra við og huga að öðru. „Á sama tíma tel ég gott fyrir Haga að nýr aðili taki við kefl­inu með ferskar hug­myndir í fartesk­inu. Framundan eru fjöl­mörg tæki­færi, en einnig spenn­andi áskor­anir sem félagið er vel í stakk búið til að takast á við.  Mér er efst í huga þakk­læti til þess sam­starfs­fólks og sam­ferða­fólks sem ég hef unnið með og kynnst á þeim rúm­lega 22 árum sem ég hef starfað fyrir félag­ið. Styrkur félags­ins liggur í öfl­ugu og sam­hentu starfs­fólki sem kann sitt fag og það hafa verið for­rétt­indi að vera hluti af þess­ari liðs­heild. Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum í sam­ein­ingu náð, sem leið­andi smá­sölu­fyr­ir­tæki á Ísland­i.  Hér er við­skipta­vin­ur­inn ávallt í önd­vegi og frá fyrsta degi hefur félagið boðið lands­mönnum lægsta vöru­verð á land­inu og sama verð um land allt. Ég óska félaginu og sam­starfs­fólki mínu vel­farn­aðar í fram­tíð­inn­i.“

Guð­mundur segir á sama stað að það verði erfitt að kveðja fyr­ir­tækið eftir hart­nær þrjá ára­tugi. „Ég er stoltur af þeim árangri sem við höfum náð og ég kveð það fólk sem ég hef kynnst á þessum tíma með sökn­uði, þá sér­stak­lega öfl­ugt og frá­bært starfs­fólk Bón­us, sem og sam­starfs­að­ila og við­skipta­vin­i.“

Hagar reka 46 versl­anir innan fimm smá­sölu­fyr­ir­tækja og tveggja vöru­húsa. Þá rekur félagið 28 Olís­stöðvar um land allt auk 41 ÓB-­stöð. Meg­in­starf­semi Haga er á sviði mat­vöru en innan þess eru tvær af stærstu versl­un­ar­keðjum lands­ins, Bónus og Hag­kaup, svo og stoðstarf­semi á sviði inn­kaupa og dreif­ing­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent