Síðustu tíu daga, frá 23. apríl til 3. maí, greindust einungis tíu ný COVID-19 smit á Íslandi. Í gær greindist ekkert nýtt smit, en að vísu voru einungis rúmlega sjötíu sýni tekin og færð til greiningar á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær.
Þetta kemur fram kemur í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.
Ljóst er að faraldurinn er að fjara út hér á landi, en meira en tífalt færri hafa greinst með sjúkdóminn undanfarna tíu daga en á þeim degi er flestir greindust, 24. mars. Þá voru ný staðfest smit 104 talsins.
Þegar mest var um virk smit, þann 5. apríl, var fjöldi þeirra 1.096. Virk smit á landinu eru nú 66 talsins og einungis fjórir einstaklingar eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins, enginn þeirra á gjörgæslu. 775 manns eru í sóttkví sem stendur.
Samtals hafa 1.799 manns greinst með COVID-19 á Íslandi, en 1.723 þeirra er batnað. Tíu manns hafa látist eftir að hafa smitast af sjúkdómnum.