Ávinningur á hvern útskrifaðan einstakling hjá VIRK nam 14,4 milljónum króna árið 2019 en af allri starfseminni var ávinningurinn 20,5 milljarðar. Hvoru tveggja jókst milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VIRK í dag.
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri fór yfir niðurstöður skýrslu sem Talnakönnun vann fyrir stjórn VIRK á ársfundi VIRK þann 28. apríl síðastliðinn. Þar kom fram að rekstrarkostnaður VIRK hefði numið 3,4 milljörðum sama ár.
Í skýrslunni var einnig reiknaður meðalsparnaður, ávinningur samfélagsins af virkni einstaklinganna, á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK og nam hann 14,4 milljónum króna á árinu 2019, einnig reiknað á föstu verðlagi, að því er fram kemur hjá VIRK.
Ábatinn skilar sér til Tryggingastofnunar
Fram kemur í tilkynningunni að þetta sé sjöunda árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og ávinning af starfsemi sinni. „Sem fyrr var unnið útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu VIRK árin 2013 til 2019 auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.“
Þá segir að sýnt sé fram á í skýrslunni að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skili sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta komi svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið fullan þátt í samfélaginu.