Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) áréttar að opinber stuðningur til fyrirtækja vegna áhrifa COVID-19 eigi „ekki að vera til þess gerður að fyrirtæki sem ekki þurfa á honum að halda vaði í sameiginlega sjóði samfélagsins að vild“.
Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar ASÍ um skilyrði fyrir opinberum stuðningi við fyrirtæki.
„Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hlutabótaleiðina örskömmu eftir að fyrirtækið greiddi eigendum sínum 1,2 milljarða króna í arð. Slíkt athæfi er ósiðlegt og ætti með réttu að vera ólöglegt,“ segir í ályktuninni.
Enn fremur kemur fram að ASÍ hafi ítrekað kallað eftir því að stjórnvöld setji skýr skilyrði við opinberum stuðningi – slíkar kröfur séu í samræmi við ráðleggingar Alþjóðavinnumálstofnunarinnar, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og OECD.
„Meðal skilyrða sem ASÍ hefur kallað eftir er að fyrirtæki hafi nýtt sér eigin bjargir, þau undirgangist skilyrði um að greiða ekki út arð til tveggja ára eftir að þau njóta fyrirgreiðslu og að fyrirtækin eða eigendur þeirra séu ekki skráð í skattaskjólum. Stjórnvöld hafa brugðist þeirri skyldu sinni að tryggja hagsmuni almennings og komandi kynslóða. Nú er mál að linni,“ segir að lokum í ályktuninni.
Styður verkfall Eflingar
Miðstjórnin lýsir enn fremur yfir fullum stuðningi við verkfall Eflingar sem nú er hafið í Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerði og sveitarfélaginu Ölfus.
„Samningar Eflingarfélaga eru lykilþáttur í að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin í íslensku samfélagi. Samningar í fyrrnefndum sveitarfélögum hafa verið lausir í rúmt ár og viðræður hafa engum árangri skilað. Samband íslenskra sveitarfélaga hefur neitað að gera kjarasamning við Eflingu sambærilegan þeim sem Ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafa þegar gert. Boðun verkfalls var samþykkt með 90 prósent atkvæða þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu,“ segir í tilkynningu ASÍ.
Miðstjórn ASÍ hvetur félagsmenn allra aðildarsamtaka sinna og annað launafólk til að virða aðgerðir Eflingar og stuðla að því að verkfallsbrot verði ekki framin.