Leigubifreiðastjórar sem hafa haft atvinnuleyfi skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt samkvæmt nýju frumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi til breytinga á lögum um leigubifreiðar.
Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins í dag.
Í gildandi lögum um leigubifreiðar frá 2001 hafa leigubifreiðastjórar heimild til að leggja inn atvinnuleyfi sitt en skilyrði er að þeir hafi haft atvinnuleyfi í minnst tvö ár samfleytt.
Í tilkynningunni segir að markmið frumvarpsins sé að draga úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum vegna COVID-19 faraldursins á þann hóp leigubifreiðastjóra sem hafa starfað skemur en tvö ár. Með því að leggja inn leyfið geti leigubílstjórar sparað kostnað vegna atvinnuleyfisins, skráð sig atvinnulausa og sótt um atvinnuleysisbætur. Margir bílstjórar hafi þegar nýtt sér það úrræði vegna samdráttar á leigubifreiðamarkaði sökum áhrifa COVID-19 faraldursins.