Eignir lífeyrissjóða jukust í mars þrátt fyrir veirufaraldur

Íslenska lífeyrissjóðakerfið á 4.950 milljarða króna. Eignir þess jukust í mars þrátt fyrir að í þeim mánuði hafi markaðir víða um heim upplifað mikinn óstöðugleika og mörg fyrirtæki á Íslandi sem þeir eiga hluti í lent í vandræðum vegna veirunnar.

Eigendur íslenskra lífeyrissjóða er fólkið sem borgar í þá, almenningur í landinu.
Eigendur íslenskra lífeyrissjóða er fólkið sem borgar í þá, almenningur í landinu.
Auglýsing

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða voru metnar á 4.950 millj­arða króna í lok mars síð­ast­lið­ins. Þær hækk­uðu um 30,7 millj­arða króna milli mán­aða. Sú hækkun er að öllu leyti vegna þess að erlendar eignir sjóð­anna, sem voru 1.485 millj­arðar króna í lok mars, juk­ust um 33,3 millj­arða króna í mán­uð­in­um. Þá hækkun má að minnsta kosti að hluta rekja til þess að krónan veikt­ist gegn helstu við­skipta­gjald­miðlum Íslands í mars­mán­uði. Alls dróg­ust inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins saman um 2,6 millj­arða króna í mar­s. 

Þetta kemur fram í nýjum tölum um eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birti í dag.

Vert er að benda á að á annan tug millj­arða króna er greitt inn í líf­eyr­is­sjóða­kerfið í formi iðgjalda í hverjum mán­uði. Því er tapið milli mán­aða, að þeim með­töld­um, meira en greint er frá í tölum Seðla­bank­ans. Búast má við því að inn­greiðslur muni drag­ast umtals­vert saman í nán­ustu fram­tíð í ljósi þess að 55 þús­und manns eru nú atvinnu­lausir að öllu leyti eða að hluta á Íslandi. Það þýðir að launa­greiðslur til þess hóps munu drag­ast veru­lega saman og sam­hliða því iðgjöld sem skila sér í líf­eyr­is­sjóð­ina.

Auglýsing
Ljóst er að hluti þess höggs sem líf­eyr­is­sjóð­irnir munu þurfa að taka á eigna­safn sitt vegna áhrifa af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum á eftir að koma fram en töl­urnar fyrir mars­mánuð eru þó jákvæð­ar. 

Fóru yfir fimm þús­und millj­arða í jan­úar

Eignir kerf­is­ins fóru yfir fimm þús­und millj­arða króna í jan­úar 2020, en lækk­uðu um 88 millj­arða króna í febr­ú­ar. Það var í fyrsta sinn síðan í des­em­ber 2018 sem að eignir kerf­is­ins dróg­ust saman milli mán­aða. Þá lækk­uðu eign­irnar um 100 millj­arða króna en juk­ust svo aftur um 145 millj­arða króna í næsta mán­uði á eft­ir. Þar var því um mjög tíma­bundna nið­ur­sveiflu að ræða. 

Eina skiptið fyrir utan það sem eign­irnar hafa lækkað meira í krónum talið en þær gerðu í febr­úar 2020 var í októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi. Þá töp­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 209 millj­örðum króna á einum mán­uð­i. 

Það verður þó að taka inn í dæmið að heild­ar­eignir þeirra fyrir hrunið voru 1.868 millj­arðar króna og því var hlut­falls­lega áfallið þá mun meira en það er nú. Í febr­úar 2020 lækk­uðu eignir íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna um 1,7 pró­sent en í hrun­mán­uð­inum 2008 lækk­uðu þær um rúm­lega ell­efu pró­sent. 

Í nóv­em­ber 2008 hækk­uðu eign­irnar svo aftur um 73 millj­arða króna og hluti af tap­inu náð­ist því til baka, aðal­lega með geng­is­fall­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent