Frá því kórónuveiran lamaði allt flug í mars hefur Flugfreyjufélag Íslands leitað allra leiða til að koma til móts við Icelandair til að hjálpa fyrirtækinu í vandræðum þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Þar segir að flugfreyjur og -þjónar hafi verið án kjarasamnings í eitt og hálft ár, og því ekki notið neinna kjarabóta ólíkt flestum á vinnumarkaði, en engu að síður hafi Flugfreyjufélagið boðið Icelandair tilslakanir á kjarasamningi félagsmanna meðan mestu erfiðleikarnir ganga yfir.
Um miðjan apríl hafi Flugfreyjufélagið lagt fram tilboð til Icelandair um langtímasamning sem hafi falið í sér verulegar tilslakanir, aukinn sveigjanleika og lengri vinnutíma. Slíkar tilslakanir hafi komið verulega til móts við kröfur um fyrirsjáanleika og hefðu haft umtalsverðar kostnaðarlækkanir í för með sér fyrir flugfélagið en að sama skapi kjaraskerðingu fyrir félagsmenn. Icelandair hafnaði þessu tilboði, að því er fram kemur í tilkynningunni, og hefur krafist tugprósenta launalækkana og skerðingar á réttindum flugfreyja og -þjóna til frambúðar.
Ekki hálaunastarf
„Starf flugfreyja/-þjóna er ekki hálaunastarf. Meðallaun félagsmanna með áratuga starfsreynslu eru talsvert undir meðallaunum í landinu. Icelandair stillir nú stéttarfélögum upp við vegg og reynir að gera þau ábyrg fyrir stöðunni og þeirri áskorun að skapa fyrirtækinu rekstrargrundvöll til framtíðar með því að umturna gildandi kjarasamningi og samþykkja mikla kjaraskerðingu til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.
Enn fremur segir að Flugfreyjufélagið hafi ekki verið tilbúið að fórna á einu bretti grundvallarréttindum í kjarasamningi, sem tekið hafi áratugi að berjast fyrir, vegna þeirrar tímabundnu stöðu sem uppi er.
„Þekkt er að á krepputímum sé vegið að kjörum og réttindum vinnandi fólks. Gegn slíku mun Flugfreyjufélag Íslands standa,“ segir að lokum.