Össur hf. hefur tekið ákvörðun um að endurgreiða Vinnumálastofnun það fé sem runnið hefur til 165 starfsmanna félagsins á meðan þeir voru í hlutastarfi vegna COVID-19 faraldursins og hætta að nota úrræðið hér á landi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar segir að þegar Össur ákvað tímabundið, um miðjan apríl, að nýta sér úrræði stjórnvalda víða um heim hafði sala fyrirtækisins á heimsvísu minnkað um helming og var enn á niðurleið. Ljóst var að þessi þróun myndi hafa mikil áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins og því var gripið til víðtækra aðgerða til að minnka bæði umsvif og kostnað.
Þessar aðgerðir hafa haft áhrif á störf og starfshlutfall um 1.000 starfsmanna fyrirtækisins um allan heim, þar af 165 á Íslandi. Sú óvissa sem ríkt hefur um framtíðina hefði, án hlutabótaúrræðisins á Íslandi og sambærilegra mótvægisaðgerða í öðrum löndum, leitt til uppsagna hérlendis sem erlendis. Nú mánuði síðar er enn mikil óvissa, en merki eru um að markaðir fyrirtækisins séu að taka við sér á ný.
„Að gefnu tilefni vill fyrirtækið taka fram að ákvörðun um arðgreiðslu vegna afkomu ársins 2019 var afgreidd áður en áhrif af COVID-19 faraldrinum voru ljós,“ segir í tilkynningunni Þá var kaupum á eigin bréfum hætt 17. mars, um mánuði áður en Össur nýtti sér úrræði stjórnvalda.
„Við erum stjórnvöldum hérlendis og erlendis afar þakklát fyrir aðgerðir sem hafa gert okkur kleift að viðhalda verðmætu ráðningarsambandi við okkar starfsmenn. Nú liggur fyrir að ekki er full samstaða hér á landi um að fyrirtæki nýti hlutabótaúrræðið. Það er okkur mikils virði að starfa í góðri sátt við samfélögin þar sem við störfum. Við greiðum því til baka alla þá fjármuni sem starfsmenn okkar hafa fengið hér á landi vegna hlutabótarleiðarinnar, sem námu um 20 milljónum króna á tímabilinu 18.-30. apríl.“